Etleva Kadilli, svæðisstjóri UNICEF fyrir Austur- og Suður-Afríku:
„UNICEF hefur miklar áhyggjur af auknum átökum í norðurhluta Eþíópíu og áhrifum þeirra á börn og fjölskyldur þeirra.
UNICEF hafa borist fregnir af börnum sem hafa særst eða látið lífið og af skemmdum á íbúðahverfum og opinberum mannvirkjum.
UNICEF hvetur alla deiluaðila til að sýna stillingu, vernda börn gegn skaða og tryggja öryggi borgaralegra innviða. Virða verður skyldur samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum og tryggja öruggan, skjótan og hindrunarlausan aðgang að mannúðaraðstoð svo samfélög geti áfram fengið þá grunnþjónustu sem þau reiða sig á.
Börn hafa þegar mátt þola allt of mikið. Þau mega ekki verða fyrir enn einu tímabili ofbeldis og óöryggis.
Samfélög um norðanverða Eþíópíu hafa lagt mikið á sig til að byggja á ný upp skóla, heilbrigðisþjónustu, vatnsveitur og önnur tækifæri fyrir börn. Vernda verður þann árangur sem náðst hefur með mikilli fyrirhöfn.
Umfram allt þurfa börn og fjölskyldur í Eþíópíu á öryggi og stöðugleika að halda svo þau geti skapað sér betri framtíð.“

