Talsmenn
barna
á Alþingi
Talsmenn barna á Alþingi er samstarfsverkefni félagasamtaka sem vinna að réttindum barna á Íslandi og þingflokka sem eiga sæti á Alþingi. Þingflokkar tilnefna tvo fulltrúa við upphaf hvers kjörtímabils sem fá fræðslu um réttindi barna, hlusta eftir sjónarmiðum barna og gæta hagsmuna þeirra.
Félagasamtökin sem koma að verkefninu eru UNICEF á Íslandi, Barnaheill, Bergið - Headspace, Félag fósturforeldra, Geðhjálp, Heimili og skóli, Íslensk ættleiðing, Rauði krossinn á Íslandi, Samfés, Samtökin '78 og Hinsegin félagsmiðstöð, Umhyggja, UMFÍ, Þroskahjálp og ÖBÍ réttindasamtök.
Saga verkefnisins
Árið 2013 samþykkti Alþingi einróma lög um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Fá ríki hafa stigið þetta mikilvæga skref og viðurkennt sáttmálann með jafn afdráttarlausum hætti. Mikilvægt er að fylgja lögfestingunni eftir og gefa réttindum barna meira vægi hér á landi.
Þar sem engin ein þingnefnd á Alþingi hefur það hlutverk að fjalla heildstætt um málefni barna, höfðu Barnaheill, UNICEF og Umboðsmaður barna frumkvæði að því að óska eftir samstarfi við þingflokka og stofna þingmannahópinn Talsmenn barna á Alþingi. Á 25 ára afmæli Barnasáttmálans, 20. nóvember 2014, skrifuðu þingmenn undir yfirlýsingu og tóku að sér það hlutverk að huga sérstaklega að réttindum, hagsmunum og sjónarmiðum barna í störfum sínum.
Tilkoma talsmanna barna var mikilvægt skref í þá átt að auka vægi réttinda barna á Alþingi. Talsmenn barna hafa átt reglulegt samráð og samstarf við stofnanir og félagasamtök sem vinna að málefnum barna, og vakið við ýmis tækifæri athygli á málefnum barna og réttindum þeirra samkvæmt Barnasáttmálanum.
Fyrirkomulagið þekkist á þjóðþingum annarra ríkja. Þingmenn víða í Evrópu skrifa undir barnaréttindayfirlýsingar og á Norðurlöndum starfa þingmenn saman þvert á flokka að því að vekja athygli á hagsmunum barna í störfum sínum.
Upphaflega stóðu átta félagasamtök sem láta sig mannréttindi barna varða að framtakinu. Þau eru Barnaheill, Heimili og skóli, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði krossinn á Íslandi, Samfés, UNICEF á Íslandi, UMFÍ, Þroskahjálp og ÖBÍ réttindasamtök. Árið 2025 bættust í hópinn Bergið - Headspace, Félag fósturforeldra, Geðhjálp, Íslensk ættleiðing, Samtökin '78 og Hinsegin félagsmiðstöð og Umhyggja.







