Einn drengur lést og tólf börn, fimm drengir og sjö stúlkur, slösuðust í drónaárás á Al Mina Al Bari-athvarfið fyrir fólk á vergangi innanlands í Al Obeid í Norður-Kordofan-héraði í Súdan seint á miðvikudagskvöld, samkvæmt fréttum.
„Börn og fjölskyldur í Al Mina Al Bari hafa þegar neyðst til að yfirgefa heimili sín og leita skjóls í búðum og athvörfum fyrir fólk á vergangi. Mörg þeirra hafa þurft að flýja heimili sín aftur og aftur,“ segir Angela Kearney, fulltrúi UNICEF í Súdan. „Börn leita hingað í von um öryggi og vernd en í gærkvöldi [innsk. miðvikudag] var öll öryggiskenndin rofin. Árásum á staði þar sem börn leita verndar verður að linna. Þessi börn hafa hvergi annað að leita.“
Atvikið er nýjasta dæmið um vaxandi áhrif drónaárása á börn í Súdan. Frá janúar til september 2026 er talið að meira en 400 börn hafi fallið eða slasast og drónaárásir hafi valdið stórum hluta þessara dauðsfalla og meiðsla. Drónaárásir hafa einnig skemmt heimili og mikilvæga innviði á borð við skóla, heilbrigðisstofnanir, vatnsveitur og markaði. Truflanir á grunnþjónustu auka enn á þá áhættu sem börn og fjölskyldur sem búa við áframhaldandi átök standa frammi fyrir.
Börnin og fjölskyldurnar sem urðu fyrir árásinni í Al Obeid voru þegar meðal þeirra sem búa við hvað mestan vanda. Víða um Súdan hefur fólk á vergangi neyðst til að flýja heimili sín ítrekað eftir því sem átök og óöryggi hafa breiðst út til nýrra svæða. Fjölskyldur koma oft í slíka búsetustaði eftir að allir aðrir möguleikar til að komast í skjól eru úr sögunni og standa áfram frammi fyrir miklum erfiðleikum við að fá aðgang að grunnþjónustu, vernd og stuðningi.
UNICEF skorar á alla deiluaðila að vernda almenning og borgaralega innviði og virða skyldur sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum. Vernda verður almenning og börn, alltaf.
Þú getur styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Súdan hér.

