Allur stuðningur við starf UNICEF er mikilvægur og við fögnum hverju einasta framlagi. Mánaðarlegur stuðningur er þó einstakur því hann gerir okkur kleift að skipuleggja starfið til lengri tíma og stuðla að varanlegum breytingum.

17.400 kr. jafngildir skólavist fyrir eitt barn í hálft ár.

Styrkja UNICEF

Allur stuðningur við starf UNICEF er mikilvægur og við fögnum hverju einasta framlagi. Mánaðarlegur stuðningur er þó einstakur því hann gerir okkur kleift að skipuleggja starfið til lengri tíma og stuðla að varanlegum breytingum.

17.400 kr. jafngildir skólavist fyrir eitt barn í hálft ár.

Styrkja UNICEF

Komum börnum á Gaza

aftur í skóla

Allt of lengi hafa hundruð þúsunda barna á Gaza verið svipt réttindum sínum til náms. Nú ætlum við í sameiningu að koma þeim aftur í skólann. Menntaverkefnið Back to Learning er stórt og umfangsmikið og miðar að því að koma 336 þúsund börnum aftur í skólann á þessu ári og veita þeim sálræna aðstoð. Skólaárið kostar aðeins 34 þúsund krónur á barn með öllu.

Þess vegna þurfum við stuðning frá þér! Komum börnunum á Gaza aftur í skóla.

Hringdu í 907-3014 og gefðu 3.000 krónur.

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102015

Kennitala: 481203-2950

Við tökum einnig við styrkjum í gegnum AUR appið í númerið: 123 789 6262 eða @unicef.

Það þarf sterkan pólitískan vilja, verulegt fjármagn og samhæfðar aðgerðir til þess að ná því metnaðarfulla markmiði að tryggja nám og andlegan stuðning fyrir öll börn á Gaza.  

Innleiðingaráætlunin

1. Aukið aðgengi

Koma á fót nýjum námsrýmum og hámarka nýtingu þeirra á öllum svæðum Gaza.

Tryggja þarf öryggi á þeim svæðum þar sem reisa á ný námsrými. Til þess þarf að fjarlægja rústir og ósprungnar sprengjur.

Búið verður til kerfi sem tryggir það að sem flest börn hafi aðgang að námi. Meðal annars með því að samnýta námsrýmin og tengja þau inn í net lærdómsmiðstöðva samfélagsins sem veita sambærilega þjónustu og starfa samkvæmt sameiginlegu eftirlitskerfi.

2. Heildstæð nálgun

Heildrænn stuðningur og áhersla á gæði náms. UNICEF útvegar nauðsynleg húsgögn og aðföng ásamt því að tryggja aðgengi. Veitt verða námsúrræði sem byggja á bestu alþjóðlegu starfsháttum og hæfniviðmiðum. Til þess að mæta þörfum barna á heildrænan hátt þarf að samþætta geðheilbrigðis- og sálfélagslegan stuðning (MHPSS), stuðning við fötluð börn, heilsufarsskimanir og næringu, leik og listastarfsemi.

3. Gagnsæi og hagkvæm nýting fjármuna

Öflug stjórnun og eftirlit. Rafrænt þjónustukerfi, með möguleika á samvirkni á milli þjónustuaðila sem styður við miðlæga dreifingu á „aftur til náms“ (Back to Learning) aðföngum, fylgist með árangri og heldur utan um mannauð. Að auki mun nefnd, leidd af börnum og foreldrum sem nýta sér námsmiðstöðvarnar tryggja gegnsæi og ábyrgð.