Neyðarsöfnun

fyrir börn í Sýrlandi

Stakur styrkur
Styrkja UNICEF
Stakur styrkur
Styrkja UNICEF

Hjálpaðu

Hringdu í 907-3011 og gefðu 3.000 krónur.

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102040 kennitala: 481203-2950

Börn í Sýrlandi þurfa áfram á stuðningi að halda.

Eftir meira en 14 ár af átökum standa börn í Sýrlandi enn frammi fyrir gríðarlegum áskorunum. Árið 2026 er áætlað að 16,5 milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda, þar af 7,4 milljónir barna. Þrátt fyrir pólitískar breytingar og auknar vonir um stöðugleika halda fátækt, skemmdir innviðir, takmarkað aðgengi að grunnþjónustu og áhrif loftslagsbreytinga áfram að hafa djúpstæð áhrif á líf barna og fjölskyldna.

Á undanförnum misserum hafa milljónir Sýrlendinga snúið aftur heim, bæði frá öðrum landshlutum og frá nágrannaríkjum. Mörg þeirra snúa þó aftur til samfélaga þar sem skólar, heilbrigðisþjónusta, vatnsveitur og önnur nauðsynleg þjónusta eru enn ekki starfhæf að fullu. Börn standa auk þess frammi fyrir hættu vegna sprengjuleifa og annarra ósprunginna hergagna sem finnast víða um landið.

UNICEF hefur starfað í Sýrlandi frá árinu 1970 og verið á vettvangi allan þann tíma sem átökin hafa staðið yfir. UNICEF vinnur að því að tryggja börnum aðgang að hreinu vatni, næringu, heilbrigðisþjónustu, vernd og menntun, auk þess að veita sálfélagslegan stuðning og aðstoða fjölskyldur við að byggja upp líf sitt að nýju.

Þótt vonir séu um friðsælli framtíð er þörfin enn mikil. Börn í Sýrlandi þurfa áfram á vernd og stuðningi að halda til að geta vaxið úr grasi við öryggi, notið menntunar og átt tækifæri til betra lífs. Með stuðningi þínum getur UNICEF haldið áfram að veita börnum lífsnauðsynlega aðstoð og hjálpað þeim að byggja upp bjartari framtíð.

Þín hjálp skiptir máli