24. nóvember 2026

Sannar gjafir: Sömu góðu gjafirnar í nýjum umbúðum

Sannar gjafir UNICEF eru fyrir löngu orðnar ómissandi í jólapakka þúsunda landsmanna – Nú hafa gjafabréfin vinsælu fengið nýtt og fallegt útlit.

Sannar gjafir UNICEF eru fyrir löngu orðnar ómissandi liður í jólaundirbúningi þúsunda landsmanna sem vilja gleðja fjölskyldu og vini með gjöf sem aldrei gleymist. Nú hafa gjafabréfin okkar fengið nýtt og fallegt útlit svo enn skemmtilegra er að gefa þau og þiggja en nokkru sinni fyrr. Umslög gjafabréfanna hafa einnig verið endurhönnuð og eru sérlega glæsileg.

Það sem er þó áfram óbreytt eru gjafirnar sjálfar, hugurinn að baki þeim og kraftaverkin sem við í sameiningu vinnum í þágu barna um allan heim með stuðningi þínum.

Þegar þú kaupir Sanna gjöf styrkir þú hjálparstarf UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, færð fallegt gjafabréf með ljósmynd (þú getur líka hlaðið upp þinni eigin mynd) og getur skrifað persónulega kveðju til viðtakanda. Með styrknum leggur þú þitt af mörkum svo UNICEF geti útvegað börnum næringu, hreint vatn, lyf, skjól og menntun þar sem neyðin er mest.

Gefðu gjöf sem mun aldrei gleymast. Sannargjafir.is.

Fleiri
fréttir

24. nóvember 2026

Sannar gjafir: Sömu góðu gjafirnar í nýjum umbúðum
Lesa meira

19. nóvember 2026

Að minnsta kosti 64 börn hafa verið drepin og 64 særst í Jemen
Lesa meira

18. nóvember 2026

Mislingar breiðast út á ný á svæðum þar sem náðst hafði stjórn á sjúkdómnum
Lesa meira
Fara í fréttasafn