18. nóvember 2026

Mislingar breiðast út á ný á svæðum þar sem náðst hafði stjórn á sjúkdómnum

UNICEF varar við þróuninni í Ameríku og að líf barna séu í hættu

Þar sem mislingar smitast mjög hratt getur jafnvel lítil lækkun á bólusetningarhlutfalli leitt til faraldurs, einnig í löndum þar sem áður hafði tekist að útrýma sjúkdómnum.

Bólivía, Mexíkó og Bandaríkin hafa misst stöðu sína sem lönd þar sem mislingum hefur verið útrýmt. UNICEF varar við bakslagi í þeim árangri sem náðst hefur með bólusetningum og fleiri börn séu nú í hættu á að smitast.

„Við sjáum mislingasmit á svæðum þar sem áður hafði tekist að ná stjórn á sjúkdómnum og börnin gjalda fyrir það,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Við höfum yfir að ráða bóluefni sem verndar börn og hefur bjargað tæplega 59 milljónum mannslífa frá árinu 2000. Við eigum ekki að vera að tapa baráttunni gegn sjúkdómi sem hægt er að koma í veg fyrir.“

Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Mexíkó hafa yfir 13.800 mislingatilfelli verið staðfest þar á þessu ári, sem er mesti fjöldi frá faraldrinum 1989–1990. Börn á aldrinum eins til fjögurra ára hafa orðið verst úti frá því faraldurinn hófst snemma árs 2025.

Í Bandaríkjunum hafa yfir 5.400 tilfelli verið staðfest á árinu, sem er mesti fjöldi síðan 1989–1991. Um 96 prósent smitaðra eru óbólusett eða með óþekkta bólusetningarstöðu. Börn undir fimm ára aldri eru 18 prósent tilfella og börn og ungmenni á aldrinum 5–19 ára eru 40 prósent.

Í Bólivíu hafa yfir 100 tilfelli verið staðfest á árinu. Faraldurinn hófst árið 2025 og batt enda á rúmlega tveggja áratuga tímabil án staðbundins smits.

Mislingafaraldrar eru í auknum mæli að brjótast út í há- og millitekjulöndum. Kanada missti stöðu sína í nóvember 2025 og þar með missti Ameríka einnig stöðu sína sem svæði þar sem mislingum hafði verið útrýmt. Í janúar 2026 misstu sex lönd í Evrópu og Mið-Asíu sömu stöðu í kjölfar aukinna smita.

Mislingar eru einn smitnæmasti sjúkdómur heims og geta valdið háum hita, alvarlegum útbrotum, lungnabólgu, heilabólgu og dauða.

Skert ónæmishlutfall eftir að bólusetningum fækkaði vegna takmarkana COVID-19-heimsfaraldursins, hindranir í aðgengi að heilbrigðisþjónustu, falsfréttir og upplýsingaóreiða sem elur á vantrú á bólusetningum hafa orðið til þess að mörg börn eru óvarin. Þar sem mislingar smitast mjög hratt getur jafnvel lítil lækkun á bólusetningarhlutfalli leitt til faraldurs, einnig í löndum þar sem áður hafði tekist að útrýma sjúkdómnum.

Hægt er að stöðva faraldra og endurheimta stöðu landa sem hafa útrýmt mislingum. Ameríka hefur náð þeim árangri tvisvar, síðast árið 2024. Bólivía, Mexíkó og Bandaríkin vinna nú að því að auka bólusetningar, efla smitrakningu og styrkja viðbrögð við faröldrum.

UNICEF vinnur með stjórnvöldum og samstarfsaðilum í yfir 100 lág- og millitekjulöndum, á átakasvæðum og afskekktum svæðum að því að ná til barna sem ekki hafa fengið allar nauðsynlegar bólusetningar. UNICEF hvetur stjórnvöld til að tryggja hátt bólusetningarhlutfall, efla eftirlit með smitsjúkdómum, fjárfesta í heilbrigðisþjónustu og endurbyggja traust almennings á bólusetningum.

Fleiri
fréttir

18. nóvember 2026

Mislingar breiðast út á ný á svæðum þar sem náðst hafði stjórn á sjúkdómnum
Lesa meira

13. nóvember 2026

Átök og farsóttir auka hungur í Kongó – metfjöldi stefnir í matarskort
Lesa meira

11. nóvember 2026

Skæðadrífa drónaárása og þurrkar ógna börnum í Súdan
Lesa meira
Fara í fréttasafn