13. nóvember 2026

Átök og farsóttir auka hungur í Kongó – metfjöldi stefnir í matarskort

Meira en 30 milljónir manna gætu búið við alvarlegt óöryggi í fæðuöflun á fyrri hluta árs 2027, þar af 4,2 milljónir á neyðarstigi. FAO, Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP), UNICEF og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) kalla eftir tafarlausum aðgerðum.

Wivine Kabala hugsar um ungt barn ebólusmitaðra foreldra í Ebólumeðferferðarmiðstöðinni í Bunia í Ituri-héraði. Mynd: UNICEF/UN0877951/Benekire

Hungurástand í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó fer versnandi og er talið að metfjöldi, 30,3 milljónir manna, muni búa við alvarlegt óöryggi í fæðuöflun eða neyðarástand (IPC-stig 3 eða hærra) frá janúar til júní 2027. Þetta kemur fram í nýjustu greiningu á alþjóðlegu flokkunarkerfi fyrir fæðuöryggi (IPC).

Vopnuð átök, fólksflótti og hækkandi matvælaverð ýta undir neyðina, sem farsóttir á borð við ebólu, mpox og kóleru gera enn alvarlegri. Vara stofnanirnar við því að neyðaraðstoð nái ekki lengur að mæta vaxandi þörf.

Tæplega 29 milljónir manna, nær fjórðungur íbúa landsins, búa nú þegar við alvarlegt fæðuóöryggi. Þar af eru 3,6 milljónir á neyðarstigi. Gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í 4,2 milljónir í byrjun árs 2027. Heildarfjöldi þeirra sem búa við alvarlegan matarskort eða verra gæti farið úr 26,5 milljónum á fyrri hluta árs 2026 í 30,3 milljónir á sama tímabili 2027.

Ástandið er sérstaklega alvarlegt í austurhluta landsins. Þar er gert ráð fyrir að meira en 11 milljónir manna í Norður-Kivu, Suður-Kivu og Ituri búi við alvarlegt óöryggi í fæðuöflun eða verra á fyrri hluta árs 2027. Níu héruð eru talin verða á neyðarstigi og þarfnast tafarlausrar mannúðaraðstoðar.

„Átökin neyða fjölskyldur til að yfirgefa heimili sín, svipta þær aðgangi að ræktarlandi og gera þeim erfitt fyrir að afla matar. Ebólufaraldurinn bætist þegar við viðkvæma stöðu. Við þurfum öruggan og viðvarandi aðgang að fólkinu sem þarf á aðstoð að halda og nægilegt fjármagn til að tryggja mataraðstoð áður en fleiri fjölskyldur lenda á neyðarstigi,“ segir Ross Smith, framkvæmdastjóri neyðarviðbúnaðar og viðbragða hjá WFP.

Átök og endurteknir fólksflutningar hafa svipt fjölskyldur lífsviðurværi sínu. Aðgangur að ræktarlandi hefur verið takmarkaður, markaðir hafa raskast og matvælaframleiðsla og tekjur dregist saman. Hækkandi verð og minni kaupmáttur gera fólki enn erfiðara fyrir að afla matar.

„Fjölskyldur í austurhluta Kongó þurfa tafarlausan stuðning svo þær geti séð sér farborða. Ef bændur fá fræ, verkfæri og annan nauðsynlegan stuðning áður en sáning hefst í byrjun árs 2027 geta þeir uppskorið um mitt ár, endurheimt tekjur sínar og lagt til fæðu fyrir samfélög sín. Ef aðstoðin berst of seint tapast enn ein uppskerutíðin og hungur og fólksflótti aukast,“ segir Rein Paulsen, framkvæmdastjóri neyðar- og viðnámsþróunarskrifstofu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Kreppan einskorðast ekki við austurhlutann. Íbúar í Tanganyika, Maniema, Kasaï, Haut-Lomami, Kwango og Haut-Uele búa einnig við alvarlegan matarskort. Óöryggi, takmarkaður aðgangur að mörkuðum, lítill kaupmáttur og röskun á landbúnaði grafa undan fæðuöryggi víða um land.

Vannæring og takmarkaður aðgangur að heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu auka enn á vandann. Börn yngri en fimm ára eru sérstaklega berskjölduð gagnvart alvarlegri vannæringu.

„Hungur og vannæring barna í Kongó stafa ekki eingöngu af matarskorti. Átök, fólksflótti og farsóttir á borð við ebólu auka hættuna, sérstaklega þegar konur og börn komast ekki í nauðsynlega heilbrigðisþjónustu eða hafa ekki aðgang að hreinu vatni og viðunandi hreinlætisaðstöðu. Við þurfum tafarlaust aukið fjármagn til að koma í veg fyrir vannæringu, tryggja mikilvæga grunnþjónustu og veita öllum börnum þá umönnun og vernd sem þau þurfa,“ segir Lucia Elmi, framkvæmdastjóri neyðaraðgerða hjá UNICEF.

Ebóla eykur álagið á fjölskyldur sem þegar eiga í erfiðleikum með að afla matar. Farsóttir eins og ebóla, mpox og kólera raska landbúnaði og lífsviðurværi, takmarka ferðafrelsi og auka útgjöld heimila. Jafnframt reynir sífellt meira á heilbrigðiskerfi landsins.

„Hungur og sjúkdómar magna upp kreppuna í Kongó. Þegar fjölskyldur hafa ekki aðgang að nægri næringarríkri fæðu, hreinu vatni eða nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu aukast líkur á veikindum og dauðsföllum. Þar sem stórir ebólu- og kólerufaraldrar geisa í austurhluta landsins er brýnt að tryggja fólki aðgang að lífsnauðsynlegri þjónustu,“ segir Chikwe Ihekweazu, framkvæmdastjóri neyðarsjúkdómaáætlunar WHO.

FAO, WFP, UNICEF og WHO kalla eftir tafarlausum og samræmdum aðgerðum, auknu fjármagni og pólitískum stuðningi til að:

  • Auka mataraðstoð og vernda og endurheimta lífsviðurværi bænda.
  • Koma í veg fyrir og meðhöndla alvarlega vannæringu.
  • Tryggja áframhaldandi heilbrigðis- og næringarþjónustu, hreint vatn og hreinlætisaðstöðu.
  • Tryggja öruggan og óhindraðan aðgang mannúðarsamtaka að fólki í neyð.

Stofnanirnar skora jafnframt á alla deiluaðila að vernda almenna borgara, sérstaklega börn, og tryggja öryggi mikilvægra innviða og grunnþjónustu. Alþjóðasamfélagið þarf að tryggja tímanlegt og viðvarandi fjármagn svo hægt sé að ná til þeirra sem verst eru staddir, ekki síst áður en mikilvægt sáningartímabil hefst. Markmiðið er að koma í veg fyrir að hungur og vannæring versni enn frekar á komandi mánuðum.

Fleiri
fréttir

13. nóvember 2026

Átök og farsóttir auka hungur í Kongó – metfjöldi stefnir í matarskort
Lesa meira

11. nóvember 2026

Skæðadrífa drónaárása og þurrkar ógna börnum í Súdan
Lesa meira

10. nóvember 2026

Úrhelli á Gaza kostaði þrjú börn og móður þeirra lífið
Lesa meira
Fara í fréttasafn