30. september 2026

Fjölskyldur í Líbanon eiga í erfiðleikum með að framfleyta sér

Átök og langvarandi efnahagskreppa hafa aukið skort og vanlíðan meðal barna – Mörg þeirra fara svöng að sofa, fá ekki nauðsynlega heilbrigðisþjónustu eða neyðast til að hætta í skóla

Hin eins árs gamla Mira fær barnamauk í Beirút. Mynd: UNICEF/UNI982728/Choufany 

Fjórar af hverjum fimm fjölskyldum í Líbanon eiga í erfiðleikum með að greiða fyrir grunnþarfir heimilisins. Átökin hafa aukið enn á margra ára efnahagskreppu og ýtt börnum út í fátækt, hungur og vinnu, auk þess sem sífellt fleiri börn neyðast til að hætta í skóla.

Þessu varar UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, við í nýrri skýrslu í dag sem ber yfirskriftina, An Enduring Nightmare. Skýrslan varpar ljósi á vaxandi áhrif kreppunnar á börn og ungmenni víðs vegar um Líbanon. Meira en ein af hverjum fimm fjölskyldum sem tóku þátt í könnuninni, eða 22 prósent, sögðust hafa upplifað að börn á heimilinu hefðu farið svöng að sofa síðustu tvær vikurnar. Þá sögðu 31 prósent fjölskyldna að börn hefðu ekki fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, fyrst og fremst vegna þess að fjölskyldurnar höfðu ekki efni á henni. Í 14 prósentum tilfella var að minnsta kosti eitt barn á heimilinu í vinnu – sem er meira en tvöfalt hærra hlutfall en mældist í janúar 2025.

„Börn og ungmenni í Líbanon bera nú byrðar sem ekkert barn ætti að þurfa að bera,“ segir Marcoluigi Corsi, fulltrúi UNICEF í Líbanon. „Fjölskyldur eru komnar að þolmörkum á sama tíma og börn fá ekki þá heilbrigðisþjónustu og menntun sem þau eiga rétt á, neyðast út á vinnumarkaðinn og glíma við alvarlega sálræna vanlíðan. Án tafarlausra og viðvarandi aðgerða mun þessi þrýstingur hafa áhrif á líf þeirra um ókomin ár.“

Átökin hafa haft gríðarleg áhrif á börn. Frá 2. mars 2026 hafa að minnsta kosti 261 barn látið lífið og 1.056 slasast. Það jafngildir að meðaltali sjö börnum sem falla eða slasast á hverjum degi í sex mánuði. Talið er að um 12 prósent slasaðra barna búi nú við fötlun vegna áverka sinna.

Menntun barna hefur einnig raskast verulega. Um 436 skólar hafa skemmst eða eyðilagst og þar með er um 100.000 börnum hætta búin á að standa án skóla. Þá hafa 86 kennarar látist eða slasast. Á heimilum sögðust 46 prósent fjölskyldna hafa dregið úr útgjöldum til menntunar og 17 prósent sögðu að börn þeirra hefðu þurft að hætta í skóla. Meðal barna sem enn sækja skóla sögðust 29 prósent ekki geta stundað nám með eðlilegum hætti, oft vegna einbeitingarerfiðleika og tilfinningalegrar vanlíðanar.

Fyrir utan sýnilega eyðileggingu hefur kreppan einnig haft djúpstæð áhrif á andlega líðan barna. Talið er að um 770.000 börn hafi upplifað sálræna vanlíðan síðustu sex mánuði. Meira en helmingur fjölskyldna sagði að tilfinningaleg líðan barna þeirra hefði versnað og nærri tveir þriðju, eða 63 prósent, sögðu að börn þeirra væru kvíðin eða uggandi.

Tækifærum ungmenna í Líbanon fer einnig fækkandi. Fyrr á þessu ári sýndi könnun UNICEF að aðeins 22 prósent ungmenna á aldrinum 18–25 ára voru í skóla eða háskólanámi, aðallega vegna fjárhagslegra hindrana. Þegar könnunin var gerð voru 67 prósent ungmenna atvinnulaus. Niðurstöðurnar sýna vaxandi hindranir sem ungmenni standa frammi fyrir þegar þau reyna að halda áfram námi, sækja nauðsynlega þjónustu og skapa sér framtíð í Líbanon.

UNICEF heldur áfram að sinna brýnum mannúðarþörfum og styðja við þau opinberu kerfi og þjónustu sem börn og fjölskyldur reiða sig á. Frá því í janúar 2026 hefur UNICEF aukið viðbrögð sín við mannúðarástandinu, meðal annars með því að sinna slösuðum börnum, koma hjálpargögnum til neyðarskýla og heilbrigðisstofnana og veita fjölskyldum sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín stuðning og umönnun.

„Án tafarlausra og viðvarandi aðgerða er hætta á að heil kynslóð barna og ungmenna beri ör eftir þessa kreppu með sér inn í fullorðinsárin,“ segir Corsi. „Endurreisn Líbanons byggist á því að vernda börn núna og standa vörð um rétt þeirra til heilbrigðisþjónustu, menntunar og verndar, auk þess að tryggja þeim þau tækifæri sem þau þurfa til að skapa sér framtíð.“

Fleiri
fréttir

30. september 2026

Fjölskyldur í Líbanon eiga í erfiðleikum með að framfleyta sér
Lesa meira

25. september 2026

Hungur og vannæring ógna börnum í Jemen meðan ofbeldið stigmagnast
Lesa meira

22. september 2026

Gríðarlegt magn námsgagna eyðilagt í drónaárásum á vöruhús í Súdan
Lesa meira
Fara í fréttasafn