22. september 2026

Gríðarlegt magn námsgagna eyðilagt í drónaárásum á vöruhús í Súdan

„Öll börn eiga rétt á menntun og þann rétt verður að standa vörð um.“

Drónaárásir á tvö vöruhús í Shikan-héraði í Norður-Kordofan í Súdan þann 20. september eyðilögðu yfir 292.000 skólabækur, 40.000 náms- og upprifjunarbækur í arabísku og stærðfræði, auk annarra námsgagna sem átti að dreifa til barna.

Til stóð að dreifa námsgögnunum frá og með október næstkomandi þegar nýtt skólaár hefst. Meðal annars átti að senda þau í skóla í West Bara, Bara og Um Dam. Talið er að eyðileggingin muni hafa áhrif á nám þúsunda barna.

„Eyðilegging þessara námsgagna er mikið áfall fyrir börn á sama tíma og allt er gert til að koma þeim aftur í skólastofur,“ segir Angela Kearney, fulltrúi UNICEF í Súdan. „Mörg börn hafa misst úr margra ára skólagöngu vegna stríðsins. Skólar búa nú þegar við skort á kennurum, skólaborðum og námsgögnum og þessi missir mun enn frekar skerða aðgengi barna að góðri menntun. Öll börn eiga rétt á menntun og þann rétt verður að standa vörð um.“

Það er oft mjög erfitt að koma námsgögnum til átakasvæða í Súdan og því eru þessar árásir sérstaklega alvarlegar. Öruggt aðgengi að námi er enn grundvallaratriði í að hjálpa börnum að halda áfram námi, ná bata og byggja sér betri framtíð.

UNICEF skorar á alla aðila í átökunum að vernda almenning og borgaralega innviði og virða skyldur sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum. Vernda þarf námsgögn og menntastofnanir svo tryggt sé að börn geti notið réttar síns til menntunar.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Súdan.

Komdu í hóp Heimsforeldra UNICEF og vertu með í að tryggja rétt barna um allan heim til náms.

Fleiri
fréttir

22. september 2026

Gríðarlegt magn námsgagna eyðilagt í drónaárásum á vöruhús í Súdan
Lesa meira

21. september 2026

250.000 börn í hættu á bráðri vannæringu á Haítí
Lesa meira

15. september 2026

Fimm ár af árásum á rétt barna í Úkraínu til náms
Lesa meira
Fara í fréttasafn