20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka

„Börn í Taiz hafa þegar mátt þola margra ára átök og skort. Þau mega ekki missa þá þjónustu sem heldur þeim á lífi.“

Samantekt á ræðu Akhil Iyer, fulltrúa UNICEF í Jemen, á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf 19. október 2026:

 „Harðnandi átök og eldsneytisskortur í Taiz í Jemen ógna starfsemi vatnsveitukerfa UNICEF sem þjóna um þremur milljónum manna, þar af að minnsta kosti 1,6 milljónum barna.

Taiz er þegar eitt þeirra svæða í Jemen þar sem vatnsskortur er mestur. Nú er enn frekara álag á mikilvægustu grunnþjónustu svæðisins, sem þúsundir fjölskyldna á flótta reiða sig á.

Frá því að átök ágerðust á ný í september er talið að um 120.000 manns hafi neyðst til að yfirgefa heimili sín og leita skjóls í Taiz. Það er meira en helmingur alls þess fólks sem hefur nýlega hrakist á flótta innan Jemen.

Margir hafa þurft að flýja hvað eftir annað og koma nú til yfirfullra byggðarlaga þar sem lítið er um mat, aðgangur að hreinu vatni takmarkaður og fjölskyldurnar hafa vart nokkuð til að framfleyta sér.

Safa, 11 ára stúlka sem nú er á flótta í Taiz, sagði okkur að „lífið væri orðið mjög erfitt“ og að jafnvel það að sækja vatn væri orðið ógnvekjandi.

Hún segir: „Það er dagleg barátta að fá vatn. Við bíðum í löngum röðum eftir að fylla vatnsbrúsana okkar. Ég sé fólk slást um að komast að og fylla brúsana sína og það hræðir mig mjög.“

Ástandið verður sífellt ótryggara.

Átökin hafa raskað mikilvægum birgðaflutningum, meðal annars á leiðinni milli Taiz og Aden. Matvæli og eldsneyti eru af skornum skammti, verð hækkar og hætta er á að nauðsynleg grunnþjónusta stöðvist.

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hefur varað við því að hveitibirgðir séu nánast uppurnar á þeim svæðum í Taiz sem átökin hafa haft áhrif á. Það er mikið áhyggjuefni í héraði þar sem fæðuóöryggi er nú þegar meðal þess mesta í Jemen. Tíu af 16 umdæmum héraðsins höfðu áður verið flokkuð á neyðarstig samkvæmt alþjóðlegum mælikvarða á fæðuöryggi (IPC, 4. stig).

Fyrir fjölskyldur sem berjast við að sjá börnum sínum farborða er þetta enn eitt þungt áfall, sérstaklega fyrir þær sem þegar glíma við vannæringu.

Á þessu ári hefur UNICEF skimað yfir 168.000 börn í Taiz og greint bráðavannæringu hjá meira en 52.000 þeirra. Það jafngildir nærri þriðja hverju barni sem var skimað.

Nú ógnar dísilskortur því að stöðva vatnsdælur og kostnaður við vatn sem flutt er með tankbílum hefur þrefaldast frá því að átökin ágerðust á ný. Fyrir fjölskyldur sem eiga þegar erfitt með að kaupa mat verður sífellt erfiðara að hafa efni á hreinu og öruggu vatni.

UNICEF hjálpar til við að halda vatnsdælukerfum í Taiz, sem þjóna um þremur milljónum manna, gangandi með því að útvega dísilolíu. Jafnframt veitum við yfir 300.000 manns neyðaraðstoð á sviði vatns- og hreinlætismála.

Afleiðingar vatnsskorts ná þó langt út fyrir þorsta.

Óöruggt vatn og léleg hreinlætisaðstaða auka hættu á niðurgangssjúkdómum og kóleru. Slíkir sjúkdómar geta aukið vannæringu þar sem þeir koma í veg fyrir að börn taki upp þau næringarefni sem þau þurfa sárlega á að halda. Börnin veikjast þá enn frekar og verða berskjaldaðri fyrir öðrum sýkingum.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) greinir frá því að grunur um kólerusmit hafi þegar þrefaldast á aðeins þremur vikum í Jemen.

Fyrir börn í Taiz er samspil hungurs, óöruggs vatns og sjúkdóma sífellt hættulegra.

UNICEF hefur komið nærri 8.000 kössum af sérhæfðri meðferðarfæðu, sem er tilbúin til notkunar, fyrir á lager til að styðja við meðferð barna í Taiz sem þjást af alvarlegri bráðavannæringu. Við höldum jafnframt áfram að styðja heilbrigðisstofnanir, meðferð við vannæringu og nauðsynlega vatnsþjónustu.

En barn sem þjáist af vannæringu má ekki missa af meðferð og má ekki eiga á hættu að veikjast af óöruggu vatni.

Við skorum á alla aðila að vernda börn og almenna borgara, tryggja öryggi vatnsveitukerfa og heilbrigðisstofnana og virða skyldur sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarrétti.

Börn í Taiz hafa þegar mátt þola margra ára átök og skort. Þau mega ekki missa þá þjónustu sem heldur þeim á lífi.“

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Jemen hefur verið opin í mörg ár og þú getur lagt þitt af mörkum. Smelltu hér til að sjá hvernig þú getur styrkt söfnunina.  

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn