04. nóvember 2026

Umhverfisráðherra undirritar loftslagsáskorun UNICEF 

UNICEF á Íslandi fagnar skuldbindingu stjórnvalda um að réttindi barna verði höfð að leiðarljósi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum – Löngu tímabært skref segir ráðherra

Birna Þórarinsdóttir og Jóhann Páll Jóhannsson við undirritun í safnaðarheimili Laugarneskirkju í dag. Mynd/Mikael

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag alþjóðlega loftslagsáskorun UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, og sagði það löngu tímabært skref sem hann væri stoltur af. Áskorunin kallar eftir markvissum og tafarlausum aðgerðum til að tryggja að réttindi barna séu höfð að leiðarljósi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. UNICEF á Íslandi hafði áður skorað á íslensk stjórnvöld að stíga þetta skref ásamt um 75 öðrum ríkjum í aðdraganda COP31 loftslagsráðstefnunnar.  

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi: 

„Við erum ánægð og þakklát íslenskum stjórnvöldum fyrir að stíga þetta skref. Það skiptir máli að stjórnvöld skuldbindi sig til þeirra aðgerða sem ungt fólk og UNICEF hefur kallað eftir, nefnilega að dregið verði róttækt úr losun gróðurhúsalofttegunda með réttlátum orkuskiptum og útfösun jarðefnaeldsneytis. Að vernd og velferð barna séu í forgangi þegar samfélag og vinnulag er lagað að breyttum heimi og síðast en ekki síst að tryggja börnum og ungmennum merkingarbæra rödd og hlutverk í samtali og ákvörðunum. Framtíðin er þeirra og okkur ber skylda til að tryggja að þau fái sanngjarnt hlutverk í mótun hennar.“ 

Um hvað snýst áskorunin? 

Loftslagsáskorun UNICEF felur, sem fyrr segir, í meginatriðum í sér að réttindi barna verði höfð að leiðarljósi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Hún leggur áherslu á að börn séu sérstaklega berskjölduð gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga, einkum þau sem búa við fátækt og erfiðar félagslegar aðstæður. Jafnframt er lögð áhersla á að börn og ungmenni séu ekki aðeins þolendur loftslagsbreytinga heldur einnig mikilvægir þátttakendur í að móta lausnir og tryggja sjálfbæra framtíð og að rödd þeirra þurfi að heyrast. 

1. Réttur barna til heilnæms umhverfis 
Viðurkenna og tryggja rétt allra barna til heilnæms og öruggs umhverfis og festa þann rétt í sessi í alþjóðlegum og landsbundnum lögum, stefnum og regluverkum. 

2. Réttindi barna í loftslagsstefnu 
Tryggja að réttindi og sérþarfir barna séu höfð að leiðarljósi við framkvæmd Parísarsamkomulagsins og gerð loftslagsáætlana ríkja. Sérstaklega þarf að líta á börn og ungmenni sem mikilvæga hagaðila í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. 

3. Aukin fjárfesting í loftslagsaðgerðum fyrir börn 
Auka og flýta fjárfestingum í aðlögun að loftslagsbreytingum, hamfaravörnum og mótvægisaðgerðum sem taka mið af þörfum barna. Forgangsraða þarf þeim börnum sem eru í mestri hættu. 

4. Fræðsla og þekking barna og ungmenna 
Efla loftslags- og umhverfisfræðslu og tryggja að börn og ungmenni öðlist þekkingu og færni til að vernda sig og taka þátt í að skapa örugga og sjálfbæra framtíð. Fræðslan þarf einnig að ná til jaðarsettra hópa. 

5. Virk þátttaka barna og ungmenna 
Tryggja að börn og ungmenni hafi raunveruleg áhrif á ákvarðanatöku og alþjóðlegt samstarf um loftslagsmál, meðal annars innan loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Sérstaklega þarf að styðja þátttöku ungmenna frá löndum hnattræna suðursins. 

6. Alþjóðleg nefnd fyrir börn og komandi kynslóðir 
Kanna möguleikann á að koma á fót alþjóðlegri nefnd sem gætir hagsmuna barna og komandi kynslóða, auk þess að styrkja sambærileg úrræði á landsvísu. 

7. Samstarf og markviss framkvæmd 
Ríki og alþjóðastofnanir þurfa að koma á fót samstarfi og viðeigandi stjórnsýslulegum úrræðum til að tryggja að sjónarmið barna og ungmenna séu samþætt öllum þáttum loftslagsaðgerða. 

Fleiri
fréttir

04. nóvember 2026

Umhverfisráðherra undirritar loftslagsáskorun UNICEF 
Lesa meira

29. október 2026

„Ferð á markaðinn á aldrei að kosta barn lífið“
Lesa meira

28. október 2026

Tíu ára afmæli Barnvænna sveitarfélaga UNICEF fagnað á Áhrifadögum ungmenna í Hofi
Lesa meira
Fara í fréttasafn