09. október 2026

Nepal: Langt í land að ná bata eftir hamfarirnar

Ræða James Elder, talsmanns UNICEF, um stöðuna í Nepal eftir hamfaraflóð

James Elder hitti Saritu Tamang og nýfæddan son hennar Pranit í Nuwakot í Nepal á dögunum. Mynd:UNICEF/UNI1016474/Upadhayay 

Samantekt á ræðu James Elder, talsmanns UNICEF, á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf 9. október.

„Meira en 32.000 börn í Nepal hafa orðið fyrir áhrifum flóða sem hófust í lok ágúst þegar fjall úr jökulís og grjóti hrundi í á í Himalajafjöllum. Hlutar bæja og þorpa líkjast nú stríðssvæðum. Vísindamenn vara við því að eftir því sem Himalajafjöll hlýna aukist hættan á hamförum af þessu tagi. Þau lönd sem minnst hafa lagt til loftslagsvandans sitja hins vegar uppi með afleiðingarnar.

„Tilkynnt hefur verið um andlát 84 barna. Enn er 5.285 einstaklinga saknað og því miður mun sú tala líklega hækka.

„Sex vikum eftir hamfarirnar er sorgin enn áþreifanleg hér á hverjum degi. Ég hitti Sahöru, 16 ára, í starfsmenntaskólanum hennar á þriðjudag. Móðir hennar lést þegar flóðin skoluðu henni burt. Sahara sagði mér grátandi: „Það er ekki gott að lifa án mömmu.“

„Ég spurði Sahöru hvort hún teldi að loftslagsbreytingar hefðu átt þátt í hamförunum. Hún sagði að í skólanum lærðu þau hvernig þau gætu hugsað vel um umhverfi sitt. Samfélagið hennar gerir það sem það getur til að vernda landið í kringum sig. Sahara hefur ekkert gert til að valda þessari krísu, en börn eins og hún bera óhóflega stóran hluta af afleiðingunum – allt frá rofi í skólagöngu til þess að missa öryggi sitt og ástvini.

„Vísindamenn fara varlega í að rekja einstakar náttúruhamfarir beint til loftslagsbreytinga og það með réttu. En aðstæður sem liggja að baki hamförum af þessu tagi eru vel þekktar. Himalajafjöll hlýna um það bil tvöfalt hraðar en heimurinn að meðaltali. Jöklarnir minnka, sífreri þiðnar og ísinn og frosna jarðlagið sem halda fjallshlíðum saman veikjast.

„Afleiðingarnar ná langt út fyrir Nepal. Í Hindu Kush-Himalaya-fjallgarðinum er meiri ís en nokkurs staðar annars staðar á jörðinni, utan heimskautasvæðanna. Um 240 milljónir manna búa í þessum fjöllum. Aðrar 1,65 milljarðar manna búa neðar í vatnakerfinu og reiða sig á árnar sem jöklarnir næra. Þetta eru nærri tveir milljarðar manna, eða um fjórðungur mannkyns.

„Þetta viðkvæma jafnvægi er að raskast. Hraðari bráðnun jökla eykur vatnsmagn og flóðahættu til skamms tíma en getur síðar leitt til alvarlegs vatnsskorts þegar jöklarnir hverfa. Hvort tveggja er afleiðing hlýnandi jarðar.

„Nepal ber aðeins ábyrgð á um 0,1 prósenti af losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Samt eru börn, sem síst bera ábyrgð á loftslagsvánni, meðal þeirra sem verða hvað verst úti vegna afleiðinganna.

„Ríki sem eiga aðild að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar hafa samþykkt að veita fjármagn og stuðning til að koma í veg fyrir, lágmarka og bregðast við tjóni og skaða af völdum loftslagsbreytinga. Fyrir lönd eins og Nepal verða þessi fyrirheit að skila sér í raunverulegum stuðningi sem nær hratt til þeirra samfélaga sem hafa orðið fyrir barðinu á hamförunum. Fjármagnið þarf að vera í formi styrkja, aðgengilegt og sniðið að þörfum barna og réttindum þeirra.

„Hvað gæti fjárhagslegur stuðningur gert núna? Leyfið mér að segja ykkur frá Shushilu og eiginmanni hennar, Jivan.

„Jivan er heyrnarlaus og talar ekki. Shushila hefur misst útlim. Saman byggðu þau upp tvö fyrirtæki, saumastofu og teverslun, og sendu börnin sín þrjú í skóla sem innheimta skólagjöld. Ég hef séð myndir af verslunum þeirra frá því fyrir flóðin. Þær voru bjartar, hlýlegar og báru þess merki að þar var vel hugsað um fólk. Fyrirtækin gengu vel og þau höfðu meira að segja keypt sér eigin íbúð.

„Svo komu flóðin. Vatnið hækkaði um meira en tvo metra inni á heimili þeirra og eyðilagði bæði fyrirtækin. Þau komust undan í fötunum sem þau stóðu í og misstu allt annað. Shushila sagði mér: „Kannski hefði verið betra ef okkur hefði ekki tekist að flýja.“

„Þetta lýsir þeirri streitu og því áfalli sem aðgerðaleysi annars staðar í heiminum veldur. Og það er einmitt hlutverk loftslagsfjármögnunar: að gera fjölskyldum eins og þessari kleift að byrja upp á nýtt.

„UNICEF hefur veitt fjölskyldu Shushilu og Jivans fjárhagsaðstoð. Með svo margar þarfir að uppfylla, hvernig ákváðu þau að ráðstafa fénu? Þau settu börnin í fyrsta sæti og keyptu bækur, ritföng og föt.

„Eingreiðsla er auðvitað ekki lausnin. Það er nauðsynlegt að veita þessari fjölskyldu, og mörgum þúsundum annarra í sömu stöðu, áframhaldandi fjárhagsaðstoð.

„Fjárhagsaðstoð er hluti af vetraraðstoð UNICEF. Við dreifum einnig teppum, nýburapökkum og hlýjum vetrarfatnaði, en með fjárhagsaðstoð fær fólk sjálft að ákveða með reisn hvað það þarfnast mest í vetur. Það getur verið að greiða húsaleigu, tryggja að dætur þess geti haldið áfram skólagöngu, kaupa gas og eldsneyti eða fá stofnfé til að endurreisa litlar verslanir og fyrirtæki. Og veturinn nálgast.

„Að lokum skulum við hafa eitt á hreinu: Hamfarirnar hófust ekki þegar vatnið tók að hækka. Fyrir flóðin voru meira en hálf milljón barna í Nepal þegar útsett fyrir að minnsta kosti þremur loftslags- og umhverfisógnum sem skarast.

„Náttúruhamfarir af þessu tagi skaða börn á þrjá vegu. Í fyrsta lagi eyðileggja þær nauðsynlega grunnþjónustu. Í þessum flóðum einum skemmdust eða eyðilögðust 23 skólar, sjö heilbrigðisstofnanir og 64 vatnsveitukerfi. Í öðru lagi skilja þær eftir djúp tilfinningaleg sár. Því er sálfélagslegur stuðningur jafn mikilvægur og matur, vatn og skjól. Í þriðja lagi setja þær heila kynslóð í hættu. Börn missa af námi og í landi þar sem 28 prósent ungra kvenna voru þegar giftar áður en þær urðu 18 ára aukast líkurnar á barnahjónaböndum meðal stúlkna.

„Það er þó ýmislegt jákvætt að segja að lokum. Viðbrögð stjórnvalda, samfélaganna og Sameinuðu þjóðanna hafa verið víðtæk. Ég sá nýjar brýr reistar aðeins nokkrum vikum eftir að flóð úr vatni og grjóti höfðu rifið slíka innviði í sundur. Á örfáum vikum hafa UNICEF og samstarfsaðilar bólusett meira en 68.000 manns gegn kóleru, tryggt 27.000 manns aftur aðgang að vatni og hjálpað þúsundum barna að snúa aftur til náms og leikja. Við höfum einnig sameinað 51 barn á ný við fjölskyldur sínar.

„Ég sá árangur hjálparstarfsins í brosandi andlitum barna í skólatjöldum, í létti mæðra sem fengu nýburapakka og í börnum sem fengu sálrænan stuðning eftir skóla. En nema heimurinn grípi til aðgerða til að draga úr loftslagstengdri áhættu munum við halda áfram að snúa aftur í sömu dali eftir næstu flóð og skriðuföll – og enn á ný sjá börn greiða hæsta verðið.

„Þetta á við í Nepal, um alla Asíu og Kyrrahafssvæðið og um allan heim.“

Fleiri
fréttir

12. október 2026

Minnst 15 börn meðal þeirra sem létu lífið þegar bátur fórst undan ströndum Djíbútí
Lesa meira

10. október 2026

Yfirlýsing UNICEF vegna jarðskjálfta í Panama
Lesa meira

09. október 2026

Nepal: Langt í land að ná bata eftir hamfarirnar
Lesa meira
Fara í fréttasafn