Fimmta hvert barn
Fyrir 10.000 kr. á mánuði má veita fjölskyldu sem misst hefur heimili sitt skjól og aðstoð.
Fyrir 10.000 kr. á mánuði má veita fjölskyldu sem misst hefur heimili sitt skjól og aðstoð.
Verið velkomin á heiðursviðburð myndlistarsýningar UNICEF í almannarýminu Hafnarstræti í Hörpu laugardaginn 25. apríl kl. 11:00.
Sýningin er öllum opin og uppi frá 21. apríl til 3. maí í Hörpu, nánar tiltekið í Hafnarstræti (gangurinn beint af augum ef gengið er inn um aðalinngang Hörpu).
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög er: 701-26-102020 Kennitala: 481203-2950.
520 milljónir barna í heiminum búa við stríð, átök og afleiðingar þeirra.
Það er fimmta hvert barn í heiminum!
Sum börn komast ekki í skóla. Sum börn vita ekki hvenær þau fá næstu máltíð.
Sum börn eiga ekki hlý föt eða öruggt heimili.
Stundum er ekkert rafmagn. Ekkert sjónvarp. Engar æfingar.
Mörg börn sofa illa og fá martraðir. Ekkert barn á að búa við svona óöryggi.
Í þessum aðstæðum fá börn ekki að vera börn.
Öll börn eiga sömu réttindi. Öll börn eiga rétt á öryggi og friði.
520 milljónir barna. Talan er stór en á bak við hverja tölu er barn.
Á þessum vegg stendur fimmta hver mynd fyrir barn sem býr við ógnir stríðs.
Barn með nafn. Barn með drauma.
Öll eiga þau rétt á friði


„Ég læt ekki myrkur og stríð breyta því hver ég er.“
Veronika, 16 ára frá Úkraínu.


„Þegar ég verð stór langar mig að verða lögreglukona.“
Sufia, 11 ára frá Mjanmar.


„Ég vil fara í skóla og leika við vini mína. Ég elska að læra þó ég hafi aldrei farið í skóla áður.“
Ihsan, 7 ára frá Sýrlandi.


„Ég sakna vina minna heima. Ég veit ekki hvar þau eru.“
Samah, 3 ára frá Súdan.


Þessi hópur barna á Gaza sér fyrir sér framtíð öryggis, friðar og frelsis þar sem hlátur, litir og ljós lýsa og fylla alla skugga.
Börn á Gaza
Börn hefja aldrei stríð
– en allt of mörg börn búa við stríð, átök og afleiðingar þeirra.
Ef við stöndum saman getum við hjálpast að við að gera heiminn betri.
Við getum öll gert eitthvað. Við getum öll unnið að friði í heiminum. Líka hér á friðsæla Íslandi.
Við getum hugsað um hvert annað. Við getum brugðist við þegar við verðum vitni að óréttlæti og látið vita ef einhver kemur fram við okkur af óvirðingu. Við getum hjálpast að við að skilja hvert annað betur og unnið saman að friði.
Við getum gert heiminn að betri stað.
Fyrsta skrefið er að standa ekki á sama.
Hvað ætlar þú að gera til að gera heiminn að betri stað?
Myndirnar á þessari sýningu voru gerðar af börnum í eftirfarandi Réttindaskólum UNICEF:
Álfhólsskóla, Engjaskóla, Flataskóla, Fossvogsskóla, Giljaskóla, Grandaskóla, Háaleitisskóla, Hamraskóla, Hlíðarskóla, Laugarnesskóla, Lundarskóla, Naustaskóla, Síðuskóla, Smáraskóla, Snælandsskóla, Vatnsendaskóla og Vesturbæjarskóla.
Sérstakar þakkir fær unga listafólkið fyrir að kynna sér málið og vera til í að leggja málefninu lið. Takk kennarar og skólastjórnendur fyrir að hjálpa okkur að gera þetta að veruleika.
