Yfirlýsing frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, 9. apríl 2026.
„Harðnandi átök í Líbanon halda áfram að leggja ólýsanlega og ómannúðlega byrði á börn. Á örfáum mínútum í gær [miðvikudag], þegar fréttir af vopnahléssamkomulagi á svæðinu vöktu um skamma stund von um frið víða um land, gerðu Ísraelar banvænar loftárásir víðs vegar um Líbanon. Samkvæmt fregnum létust 33 börn og 153 særðust.
„Börn og fjölskyldur urðu fyrir skæðadrífu loftárása sem tættu í sundur heilu samfélögin með skelfilegum afleiðingum. Blóðbaðið nú bætir enn við skelfilegar tölur látinna og særðra barna sem nú telja 600 börn frá 2. mars síðastliðnum.
„UNICEF fær nú tilkynningar um börn sem eru dregin úr rústum, á meðan önnur eru enn týnd og aðskilin frá fjölskyldum sínum. Mörg þeirra glíma við áföll eftir að hafa misst ástvini, heimili sín og alla öryggistilfinningu. Um allt land hafa yfir ein milljón manna neyðst til að flýja heimili sín, þar á meðal 390.000 börn sem mörg eru ekki að flýja í fyrsta sinn.
„Alþjóðleg mannúðarlög eru skýr. Ávallt ber að vernda almenna borgara, þar á meðal börn. Allir aðilar að átökunum verða að gera allar raunhæfar ráðstafanir til að vernda almenna borgara og borgaralega innviði, sem og tryggja öruggan, samfelldan og óhindraðan aðgang mannúðaraðstoðar. Notkun sprengivopna á þéttbýlum svæðum er lífshættuleg fyrir börn. Slíkt verður að stöðva.
„UNICEF starfar á vettvangi í Beirút og sinnir þar mörgum særðum börnum. Þar sem þörfin vex hratt eykur UNICEF neyðaraðgerðir sínar. Teymi samtakanna aðstoða við dreifingu nauðsynja í neyðarskýlum, útvegar heilbrigðisstofnunum og færanlegum heilsugæslueiningum sjúkragögn svo hægt sé að veita fjölskyldum á flótta bráðaþjónustu.
„Þrátt fyrir að vopnahlésviðræður hafi létt á annars staðar eru áframhaldandi hernaðaraðgerðir í Líbanon alvarleg ógn við vopnahlé og allar tilraunir til að koma á varanlegum friði í heimshlutanum. Börnin í Líbanon mega ekki sitja eftir.
UNICEF á Íslandi minnir á neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum. Smelltu hér.

