05. janúar 2024

Vítahringur vannæringar, árása og sjúkdóma ógnar lífi milljón barna á Gaza

Tilfellum niðurgangs hjá börnum fjölgað um 50% á viku – 90 prósent barna undir tveggja ára búa við ófullnægjandi næringu

Yamen (7 ára) og Yazan bróðir hans (4 ára) með vatn frá UNICEF í UNRWA-flóttabúðum í Khan Yunis í suðurhluta Gaza. MYND/UNICEF

Börn á Gaza eru enn föst í lífshættulegum vítahring sjúkdóma, vannæringar og stigvaxandi árása nú þegar vika fjórtán nálgast síðan Ísraelsmenn hófu hernaðaraðgerðir á svæðinu. Þúsundir saklausra barna hafa fallið í árásunum og eftirlifendur glíma við síversnandi lífsskilyrði dag frá degi. 

„Börnin á Gaza eru stödd í martröð sem versnar með hverjum degi,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í tilkynningu í dag. „Þau eru drepin í árásum og lífi þeirra sem eftir standa er ógnað af sjúkdómum og skorti á næringu og vatni. Það verður að vernda börn og almenna borgara fyrir þessum ofbeldisverkum og tryggja aðgengi þeirra að nauðsynjum.“ 

Vaxandi áhyggjur af yfirvofandi hungursneyð

Í tilkynningu UNICEF kemur fram að vikuna fyrir jól fjölgaði tilfellum niðurgangs hjá börnum undir fimm ára úr 48 þúsund í 71 þúsund. Það að tilfellum fjölgi um 3.200 á dag segir UNICEF vera skýrt merki um að velferð barna og heilsu hraki ört við þessar skelfilegu aðstæður. 

Undir lok síðasta árs varaði Integrated Food Security Phase Classification (IPC) við yfirvofandi hungursneyð á Gaza og segir í tilkynningu UNICEF að rannsóknir stofnunarinnar sýni að aukning hefur orðið á fjölda barna sem búa við ófullnægjandi næringu. Þannig er um 90% barna undir tveggja ára aldri að neyta einhæfrar fæðu úr aðeins tveimur eða færri fæðuhópum. Flestar fjölskyldur segja börnin aðeins neyta korns – að brauði meðtöldu– og mjólkur. 

UNICEF segir vert að hafa áhyggjur af því að versnandi aðstæður barna og fjölskyldna auki líkur á að ástandið endi með hungursneyð. Þess ber að geta að mikið þarf til að lýst sé yfir hungursneyð í dag, svo það gefur vísbendingu um hversu slæmt ástandið er. UNICEF kveðst sérstakar áhyggjur hafa af næringarskorti rúmlega 155 þúsund þungaðra kvenna og kvenna með barn á brjósti sem og rúmlega 135 þúsund barna undir tveggja ára aldri. 

Banvæn blanda

Vart þarf að nefna að ómeðhöndluð vannæring og sjúkdómar eru banvæn blanda hjá viðkvæmum hópum eins og börnum. Þá hjálpar engum að mikilvægir innviðir sem tryggja vatn, hreinlætisaðstöðu og heilbrigðisþjónusta á Gaza hafa ýmist verið stórskemmdir eða gjöreyðilagðir og því takmarkað mjög möguleikann á að meðhöndla alvarlega vannæringu og útbreiðslu sjúkdóma. 

UNICEF er á vettvangi fyrir börn á Gaza

Frá upphafi átaka og árása hefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, unnið að því að dreifa nauðsynlegum hjálpargögnum til Gaza-strandarinnar. Þar á meðal bóluefnum, sjúkragögnum, hreinlætispökkum, næringarfæði og -aðstoð auk eldsneytis, vatns, vatnstanka, brúsa, ferðasalerna, tjalddúka, vetrarfatnaðar og hlýrra teppa. 

UNICEF kallar eftir því að vöruflutningar verði heimilaðir á ný svo hægt sé að fylla á hillur í verslunum sem og eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum svo hægt sé að koma óbreyttum borgurum til bjargar og draga úr þjáningu þeirra með neyðaraðstoð.

„UNICEF vinnur ötullega að því að tryggja börnum á Gaza lífsnauðsynlega aðstoð. En við þurfum nauðsynlega á betra og öruggara aðgengi til að bjarga lífi barna.“ Segir Russell í tilkynningu.

„Framtíð þúsunda barna á Gaza hangir á bláþræði og heimurinn getur ekki, og má ekki, bara standa og horfa á. Ofbeldisverkum og þjáningu barna verður að linna.

ÞÚ GETUR STUTT NEYÐARSÖFNUN UNICEF Á ÍSLANDI:

Sendu SMS-ið NEYD í númerið 1900 til að styrkja um 2.900 krónur (Síminn og Nova).
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102015 Kennitala: 481203-2950
AUR í númerið: 123 789 6262 eða @unicef.
Þú getur líka styrkt neyðarsöfnunina á Sannargjafir.is

Fleiri
fréttir

20. nóvember 2024

UNICEF: Framtíð barnæskunnar hangir á bláþræði í breyttum heimi 
Lesa meira

20. nóvember 2024

Ungmenni fá orðið á Alþjóðadegi barna: „Kæra fullorðna fólk– Hlustið á okkur“
Lesa meira

18. nóvember 2024

Þúsund dagar af stríði í Úkraínu: 16 börn drepin eða særð í hverri viku
Lesa meira
Fara í fréttasafn