Nú þegar loks er farið að leyfa flutning námsgagna inn á Gaza ætlar UNICEF að nýta tækifærið og tryggja hundruð þúsunda barna námstækifærin sem þau hafa verið svipt allt of lengi. Með menntaverkefninu Aftur til náms ætlar UNICEF að koma 336 þúsund börnum á Gaza aftur til náms á þessu ári og veita þeim sálræna aðstoð í leiðinni. Þetta er stórt og umfangsmikið verkefni og þess vegna þurfum við þinn stuðning til láta það verða að veruleika!
Smelltu hér til að styrkja og koma börnum á Gaza AFTUR TIL NÁMS
Fyrsta skólaárið fyrir eitt barn kostar aðeins 34.400 krónum. Og þar er allt innifalið frá skólagögnum, búnaði, hreinlætisaðstöðu, stórum skólatjöldum og húsgögnum til annars kostnaðar vegna starfsfólks, stjórnsýslu og eftirlits.
Sextíu prósent barna á skólaaldri hafa í dag ekkert aðgengi að persónulegri kennslu og menntun. Rúmlega 90 prósent skóla hafa verið skemmdir eða eyðilagðir. UNICEF skilur mikilvægi menntunar og ætlar að fjölga fjölþjónustu- og kennslumiðstöðvum og veita börnum tækifæri til náms og sálræna aðstoð í öruggu rými.
Lærdómur er lífsbjörg
Mörg hugsa sjálfsagt; af hverju að leggja áherslu á menntun þegar fjölskyldur eiga ekki mat, vatn og skjól? UNICEF segir að eitt verkefni útiloki ekki annað. UNICEF heldur áfram að sinna mannúðaraðstoð af krafti. Við erum nú þegar að halda úti rúmlega 100 kennslusvæðum á Gaza, við afhentum milljón hlý teppi og vetrarfatnað fyrir veturinn, við höfum opnað rúmlega 70 næringarmiðstöðvar víðs vegar um Gaza við erfiðar aðstæður, tryggt bólusetningar og grunnheilbrigðisþjónustu og unnið að því að koma vatns-, hreinlætis- og skólpmálum aftur í gang.
Fyrir stríð var læsi meðal íbúa Gaza með því hæsta sem gerist í heiminum. Metnaður og stolt þeirra lá í menntun og knúði áfram þrautseigju og framfarir heilu kynslóðanna. Þessi arfleifð er í hættu og UNICEF skilur mikilvægi menntunar í samfélögum. Engar áhyggjur, við höldum áfram þrotlausri vinnu við öll hin mikilvægu verkefnin líka, en markmiðið er einnig að tryggja menntun þessara barna.
Kostnaðurinn við að tryggja einu barni aðgengi að námi og nauðsynlegum sálrænum stuðningi á þessu fyrsta ári er 34.400 krónur. Það er innan við 3.000 kr. á mánuði!
Við getum þetta því við erum UNICEF og við þurfum stuðning frá þér.
Smelltu hér til að styrkja og koma börnum á Gaza AFTUR TIL NÁMS
Sjá einnig:
UNICEF ætlar að gefa hundruð þúsunda barna á Gaza tækifæri til að læra
Vegtálmar á skólagöngunni – Pistill Birnu Þórarinsdóttur eftir heimsókn til Palestínu

