Nærri 2 milljónir barna í Sómalíu eru í hættu á að glíma við bráðavannæringu nú þegar hver krísan leggst ofan á aðra til að gera illt verra fyrir börn í Afríkuríkinu. Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hefur nýlokið heimsókn sinni til Sómalíu.
Þurrkar, átök, fólksflótti og samdráttur í fjármögnun alþjóðlegrar þróunaraðstoðar hafa undanfarin misseri leikið íbúa Sómalíu grátt og bæta átökin í Mið-Austurlöndum gráu ofan á svart. Hækkandi eldsneytisverð og raskanir á aðfangakeðjum gera það að verkum að flutningur á mat, lyfjum, eldsneyti, vatni og öðrum nauðsynjum verður sífellt dýrari. Setur það aukið álag á fjölskyldur og mannúðarsamtök sem reyna allt hvað þau geta til að aðstoða þá sem verst standa. Sómalía er mjög háð innflutningi og því geta verð þar hækkað hratt vegna utanaðkomandi þátta. Þannig hefur verð á vatni á þurrkasvæðum meira en tvöfaldast, bæði vegna skorts og því að flutningar eru orðnir svo dýrir vegna eldsneytisverðs.
Vatnsskortur versta ógnin
Vatnsskortur er enn alvarlegasta vandamálið í Sómalíu helsti og helsti drifkraftur neyðarástands í landinu. Þegar ár þorna upp, borholur bregðast og staðbundin vatnsból verða óáreiðanleg neyðast heilu samfélögin til að færa sig um set í síauknum mæli. Sjúkdómar breiðast út, lífsviðurværi glatast og fæðuóöryggi eykst, sérstaklega á svæðum þar sem mannúðaraðstoð dregst saman vegna fjárskorts.
„Eitt það átakanlegasta sem ég sá voru raðir af vannærðum börnum í sjúkrarúmum og áhyggjufullum mæðrum sem vona að börn þeirra lifi af,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF, eftir að hafa hitt fjölskyldur í Dollow. „Fólkið er ótrúlega seigt en það þarf meiri stuðning því öll viðvörunarmerki blikka á rauðu núna.“
UNICEF er nú þegar með hjálpargögn að verðmæti 15,7 milljóna Bandaríkjadala ýmist í flutningi eða undirbúningi til sendingar til Sómalíu. Þar á meðal er næringarfæði fyrir vannærð börn, bóluefni og skordýranet til að vernda börn gegn malaríu. Ef ástandið í Mið-Austurlöndum lagast ekki er fyrirséð að þessar sendingar tefjist eða verði dýrari.
Lífsnauðsynleg þjónusta leggst af
Á síðasta ári hafa meira en 400 heilbrigðis- og næringarstöðvar lokað vegna skorts á fjármagni. Ef aukinn stuðningur berst ekki gæti þurft að loka enn fleiri slíkum á næstu mánuðum, þar á meðal á svæðum þar sem hungur og vannæring eru mest. Slíkar lokanir myndu skilja mæður eftir án meðgönguþjónustu, börn án bólusetninga og alvarlega vannærð börn án lífsnauðsynlegrar meðferðar.
Og jafnvel fyrir allt þetta, fjármagnsskort og átök í Miðausturlöndum, þurftu nærri þrjár milljónir barna í Sómalíu brýna aðstoð. Í síðasta mánuði vöruðu stofnanir Sameinuðu þjóðanna og stjórnvöld við því að versnandi þurrkar, með tilheyrandi uppskerubresti og skaðlegra áhrifa á búpening, gætu sett nærri 6,5 milljónir Sómala í alvarlegt fæðuóöryggi fyrir lok þessa mánaðar. Þá eru meira en 1,8 milljónir barna undir fimm ára aldri í hættu á bráðri vannæringu fyrir lok ársins.
Sjö daga ganga eftir aðstoð
Í heimsókn sinni til Sómalíu hitti Russell fjölskyldur á þurrkasvæðum í Dollow í Jubaland-héraði. Þar hitti hún móður sem hafði misst búfé og uppskeru vegna þurrka og gekk í sjö daga til að fá meðferð fyrir vannærð börn sín.
Auk neyðaraðstoðar vinnur UNICEF með samstarfsaðilum að því að efla samþættar lausnir sem tengja saman skammtímaaðgerðir og langtímafjárfestingar í vatnskerfum, næringu, félagslegri vernd og áfallaþoli samfélaga gagnvart loftslagsbreytingum.
„Fyrir börnin í Sómalíu skiptir hver dollari og hver mínúta máli þegar kemur að því að koma lífsbjargandi aðstoð til þeirra,“ segir Russell. „Það sem börn í Sómalíu þurfa mest, er friður, vernd og öruggt aðgengi að grunnþjónustu. Með því geta börn dagsins í dag orðið læknar, hjúkrunarfræðingar og kennarar framtíðarinnar sem efla samfélög sín og þjóð.“
Til að mæta brýnni þörf milljóna barna og fjölskyldna í Sómalíu á árinu metur UNICEF fjárþörf verkefna á rúmlega 120 milljónir dala, aðeins 20 milljónir dala hafa borist.

