22. desember 2020

UNICEF svarar kalli alþjóðasamfélagsins í baráttunni við COVID-19

Á meðan heimsbyggðin bíður eftir að fá fyrstu skammtana af bóluefnum við kórónaveirunni (COVID-19) er eitt af stóru verkefnum UNICEF að tryggja að öll lönd hafi jafnan aðgang að bóluefnunum. UNICEF mun gegna lykilhlutverki í COVAX-samstarfinu.

Á meðan heimsbyggðin bíður eftir að fá fyrstu skammtana af bóluefnum við kórónaveirunni (COVID-19) er eitt af stóru verkefnum UNICEF að tryggja að öll lönd hafi jafnan aðgang að bóluefnunum. UNICEF mun gegna lykilhlutverki í COVAX-samstarfinu - samstarfi 192 landa sem tryggja á jafna dreifingu bólu­efn­is gegn kórónaveirunni meðal fá­tækari ríkja heims­ins. Þar mun UNICEF leiða innkaup og afhendingu á bóluefnunum til yfir 90 lág- og millitekjuríkja.

„Þetta er stærsta verkefni UNICEF á sviði bólusetninga fyrr og síðar og umfangið er sögulegt, enda aldrei jafn mikið verið í húfi. UNICEF nýtir sérþekkingu sína í útboði og dreifingu bóluefna til að tryggja að öll lönd hafi jafnan aðgang að fyrstu skömmtunum þegar þeir verða í boði,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Með þessu svarar UNICEF kalli alþjóðasamfélagsins í baráttunni gegn heimsfaraldrinum. Vernda þarf þau lönd sem hafa veikustu heilbrigðiskerfin gegn veirunni til þess að hægt sé að úrýma henni fyrir fullt og allt. Markmið COVAX-samstarfsins er að tryggja 2 milljarða skammta af bóluefnum fyrir lok ársins 2021.

Sérþekking UNICEF nýtist í sögulegu bólusetningarátaki

UNICEF hefur í áratugi verið leiðandi í bólusetningum og er stærsti einstaki kaupandi bóluefna í heiminum. Á hverju ári bólusetja UNICEF og samstarfsaðilar hátt í helming allra barna í heiminum gegn lífshættulegum sjúkdómum á borð við mislinga, mænusótt, rauða hunda og stífkrampa. Nú þegar hefur UNICEF komið upp gríðarstórum lager af sprautum og viðræður eru í fullum gangi við flutningsaðila, meðal annars stærstu flugfélög heims, um dreifingu á bóluefnum gegn COVID-19.

UNICEF hefur undanfarið unnið að því að meta getu flugfélaganna, kortleggja helstu flugleiðir og rýna í stærstu áskoranirnar við afhendingu bóluefnanna. Það er nefnilega ekki alltaf einfalt að koma bóluefnum á áfangastað, sérstaklega á afskekktum svæðum, og þar mun sérþekking UNICEF í köldu keðjunni (e. cold chain) gegna veigamiklu hlutverki í skipulagningu.

„UNICEF hefur mikla reynslu í því að finna leiðir til að koma bóluefnum til barna á afskekktum eða stríðshrjáðum svæðum. Oft þarf að notast við ólíka samgöngumáta, til dæmis mótorhjól, asna eða jafnvel fara fótgangandi yfir fjöll og dali með kælitöskur sérstaklega útbúnar til að bóluefnið haldist við rétt hitastig,“ segir Birna.

Þá undirbýr UNICEF, í samstarfi við Alþjóðasamtökin um bólusetningar (GAVI) og Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (WHO), nauðsynlega innviði, leiðbeiningar um verklag og þjálfun starfsfólks sem þarf fyrir örugga framkvæmd bólusetninga í efnaminni ríkjum.

Bóluefni fyrir alla

Kórónaveirufaraldurinn hefur raskað lífi barna um allan heim og sett áratuga árangur af þróunarsamvinnu í mikla hættu. Því er mikilvægt að forgangsraða dreifingu bóluefna þannig að ójöfnuður aukist ekki enn frekar. Eins og fram hefur komið í fréttum taka íslensk stjórnvöld þátt í COVAX-samstarfinu og fjármagna bóluefni fyrir fátækari ríki heimsins. UNICEF á Íslandi fagnar þeirri ákvörðun stjórnvalda enda ljóst að mikinn samtakamátt þarf til að fjármagna dreifinguna til landa um allan heim, sem er kostnaður sem bætist ofan á önnur verkefni UNICEF í þágu barna.

„Bóluefnin eru handan við hornið og með því kviknar von um að við getum farið að lifa eðlilegra lífi á ný. En það er ekki nóg að bóluefnin séu komin, það þarf að tryggja bóluefni fyrir alla. Það er ekki heldur nóg að koma bóluefnunum á áfangastað, það þarf að veita tæknilegan og fjárhagslegan stuðning, þjálfa heilbrigðisstarfsfólk og byggja upp traust til bólusetninga í samfélögunum. Öll þessi vinna er gífurlega mikilvæg til þess að fátækari ríki heimsins verði ekki skilin eftir. Slíkt myndi hafa skelfilegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir börn um allan heim. Þetta er ekki búið fyrr en við höfum náð að bólusetja allan heiminn“ segir Birna að lokum.

Nýtt mælaborð um þróun bóluefnanna

Í gær hleypti UNICEF af stokknum nýju mælaborði fyrir bóluefnamarkaðinn sem er gagnvirkt tæki fyrir lönd, samstarfsaðila og framleiðsluiðnaðinn. Þar verður hægt að fylgjast með þróun bóluefna gegn COVID-19 og árangri COVAX-samstarfsins í að tryggja sanngjarnt verð og sanngjarnt aðgengi allra landa í heiminum að bóluefnun. Þetta er gert til að tryggja gagnsæi, skilvirkni og frjálst flæði upplýsinga.

Hægt er að skoða mælaborðið hér.

Fleiri
fréttir

20. nóvember 2024

UNICEF: Framtíð barnæskunnar hangir á bláþræði í breyttum heimi 
Lesa meira

20. nóvember 2024

Ungmenni fá orðið á Alþjóðadegi barna: „Kæra fullorðna fólk– Hlustið á okkur“
Lesa meira

18. nóvember 2024

Þúsund dagar af stríði í Úkraínu: 16 börn drepin eða særð í hverri viku
Lesa meira
Fara í fréttasafn