12. ágúst 2026

UNICEF styður börn og fjölskyldur í kjölfar jarðskjálftans stóra í Kólumbíu

UNICEF hefur hrundið af stað fyrstu viðbrögðum í Chocó og Buenaventura á sviði vatns, hreinlætis og persónulegs hreinlætis til að draga úr hættu á smit- og heilbrigðisvanda og tryggja velferð og mannlega reisn fjölskyldna

Sjálfboðaliðar og björgunarlið að störfum í rústum byggingar í Cali. Mynd: UNICEF/UN0905537/Sarmiento/AFP 

Í kjölfar jarðskjálftans stóra upp á 7,4 sem reið yfir vesturhluta Kólumbíu eykur UNICEF viðbragð sitt til að styðja við börn og fjölskyldur sem hafa orðið fyrir áhrifum í Chocó-héraði og borginni Buenaventura á Kyrrahafsströndinni. Þúsundir manna, þar á meðal börn, hafa orðið fyrir áhrifum og er héraðið Chocó næst upptökum skjálftans og meðal þeirra svæða sem verst hafa orðið úti.

Samkvæmt opinberum tölum eru 181 látinn, 195 er saknað og meira en 2.595 slasaðir í eftir skjálftann stóra. Enn er unnið að mati á heildarfjölda barna sem hafa orðið fyrir áhrifum, en yfirvöld áætla að 796 skólar hafi orðið fyrir skemmdum eða öðrum áhrifum vegna skjálftans. UNICEF hefur áhyggjur af truflunum á skólastarfi og þar með menntun barna sem og aðgengi þeirra að öruggum rýmum.

„Börn hafa séð heimili sín og skóla skemmast og standa frammi fyrir aukinni áhættu á sama tíma og nauðsynleg grunnþjónusta liggur niðri í þeim samfélögum sem verst hafa orðið úti,“ segir Tanya Chapuisat, fulltrúi UNICEF í Kólumbíu. „UNICEF hefur hrundið af stað fyrstu viðbrögðum í Chocó og Buenaventura á sviði vatns, hreinlætis og persónulegs hreinlætis til að draga úr hættu á smit- og heilbrigðisvanda og tryggja velferð og mannlega reisn fjölskyldna sem hafa lent í þessum hörmungum. Á sama tíma er unnið að því að koma nauðsynlegri þjónustu aftur í gagnið og meta umfang neyðarinnar.“

Skemmdir á mikilvægum innviðum hafa raskað aðgengi að vatni, rafmagni, menntun, heilbrigðisþjónustu og fjarskiptum. Erfiðleikar við fjarskipti og dreifð byggð samfélaganna torvelda jafnframt mat á þörfum þeirra sem hafa orðið fyrir áhrifum.

UNICEF útvegar birgðir á sviði vatns, hreinlætis og persónulegs hreinlætis fyrir 22.000 manns í Chocó og Buenaventura. Þar á meðal eru hreinlætis- og vatnsbirgðapakkar fyrir fjölskyldur, pakkar fyrir mæðravernd, pakkar með nauðsynjum fyrir tíðaþrif og vatnsgeymar. UNICEF vinnur einnig með Kólumbísku stofnuninni fyrir velferð fjölskyldna (ICBF) að því að efla forvarnir og viðbrögð á sviði barnaverndar fyrir börn sem hafa orðið fyrir áhrifum jarðskjálftans.

UNICEF hefur starfað í Chocó í meira en tvo áratugi og hefur áframhaldandi starfsemi í Buenaventura. UNICEF samhæfir nú viðbrögð sín með lands- og sveitarstjórnvöldum sem og samstarfsaðilum og öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna. UNICEF er reiðubúið að auka viðbragð sitt enn frekar til að tryggja að börn og fjölskyldur þeirra fái aðgang að lífsbjargandi aðstoð og vernd.

Fleiri
fréttir

12. ágúst 2026

UNICEF styður börn og fjölskyldur í kjölfar jarðskjálftans stóra í Kólumbíu
Lesa meira

06. ágúst 2026

300 börn drepin á 300 dögum: Börnin á Gaza bíða enn eftir þeim friði sem þeim var lofað
Lesa meira

05. ágúst 2026

UNICEF fordæmir árásir sem kosta börn lífið í Úkraínu og Rússlandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn