11. október 2025

UNICEF fagnar vopnahléi á Gaza

Yfirlýsing framkvæmdastjóra UNICEF, Catherine Russell, um vopnahléið á Gaza-svæðinu

Hér að neðan má lesa yfirlýsingu Catherine Russell, framkvæmdastjóra UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um vopnahléið á Gaza:

„UNICEF fagnar því að samið hefur verið um vopnahlé á Gaza-svæðinu, sem veitir von fyrir börn í Palestínu sem hafa þurft að þola hryllilegan stríðsrekstur síðustu tvö ár.

UNICEF er tilbúið með yfir 1.300 flutningabíla sem innihalda tjöld, næringu, nauðsynleg lyf og bóluefni, námsefni, vatns- og hreinlætisbúnað. Við höfum starfsfólk og samstarfsaðila á vettvangi sem vinna að því að bæta líf barna. Allir aðilar verða að tryggja að mannúðaraðgerðir Sameinuðu þjóðanna geti hafist tafarlaust á öruggan hátt og á þeim skala sem þarf.

Það er brýnt að aðilar virði skilmála samkomulagsins, tryggi að vopnahléið sé virt,  að það sé varanlegt og leiði til langvarandi friðar, og að öllum gíslum á svæðinu verði sleppt á öruggan og virðulegan hátt.

Tveggja ára loftárásir og átök hafa valdið gífurlegri eyðileggingu á Gaza-svæðinu. Meira en 64.000 börn hafa verið drepin eða særð, og heimili, sjúkrahús og skólar hafa verið lögð í rúst. Nauðsynleg þjónusta hefur hrunið og umfang mannúðaraðstoðar sem þarf er gríðarlegt.

Hungursneyð hefur verið lýst yfir á hluta Gaza-svæðisins og öll börn undir fimm ára aldri eru í hættu vegna alvarlegrar vannæringar. Það eru samtals 320.000 börn. Meira en 56.000 börn hafa misst annað eða bæði foreldra sína. Öll börn hafa upplifað áföll og veruleg truflun hefur orðið á menntun þeirra.

Vopnahléið verður að tryggja mannúðarsamtökum tækifæri til að veita þá umfangsmiklu neyðaraðstoð sem svo sárlega þarf á Gaza á öruggan hátt. Þetta felur í sér óhindraðan aðgang að öllum börnum og fjölskyldum með mat og næringu, heilbrigðisþjónustu, vernd og sálfélagslegan stuðning, hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, menntun, sem og fjárhagsaðstoð og flutning á vörum til verslunar.

Allar landamærastöðvar inn á Gaza, þar á meðal í norðurhlutanum, þurfa að opnast tafarlaust til að tryggja flæði mannúðaraðstoðar, nauðsynjavara og neyðarbirgða. Veturinn er á næsta leiti og tíminn er naumur þar sem þarf að tryggja að börn og fjölskyldur hafi aðgang að nauðsynlegum birgðum til að takast á við vetrarveður og kulda.

UNICEF hvetur aðila eindregið til að nýta þetta samkomulag sem tækifæri til að móta varanlega pólitíska lausn sem tryggir réttindi og velferð allra barna í Palestínu og Ísrael.

Stríðið hefur þegar kostað börnin á Gaza svo mikið. Þau eiga nú skilið varanlegan frið svo hægt sé að hefja bataferlið."

Fleiri
fréttir

06. maí 2026

Hvítt fyrir börn sem biðja um frið
Lesa meira

05. maí 2026

Von í poka fyrir vannærð börn: Kraftaverkamaukið enn að bjarga lífum 30 árum síðar
Lesa meira

04. maí 2026

UNICEF: Innflytjendakerfi og stefna verða að tryggja réttindi barna 
Lesa meira
Fara í fréttasafn