Teymisstjóri innanlandsverkefna UNICEF á Íslandi
UNICEF á Íslandi auglýsir stöðu teymisstjóra innanlandsverkefna lausa til umsóknar. Við leitum að leiðtoga sem brennur fyrir mannréttindum barna, er óhrædd/ur við að taka slaginn fyrir þeirra hönd og hefur bjartsýni, jákvæðni, skipulag og lausnir að leiðarljósi.
Ábyrgðir
- Áætlanagerð fyrir innanlandsteymi og framfylgd áætlana.
- Umsjón með verkefnum innanlandsteymis.
- Hagsmunagæsla fyrir börn á Íslandi m.t.t. réttinda þeirra.
- Fræðsla um réttindi barna fyrir börn og fagstéttir er koma að málefnum barna.
- Mannauður innanlandsteymis.
- Upplýsingagjöf, áætlanagerð og samskipti við UNICEF alþjóðlega er varðar innanlandsstarf UNICEF á Íslandi.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Stjórnunarreynsla
- Reynsla af áætlanagerð og verkefnastjórnun
- Þekking á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
- Reynsla af hagsmunagæslu og/eða fræðslu um mannréttindi er kostur
- Reynsla af þjálfun og kennslu er kostur
- Mikil félags- og samskiptafærni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott vald á íslensku og ensku
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri í síma 552-6300, birna@unicef.is. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á unicef@unicef.is merkt til og með 8. október.
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum.
Við berjumst fyrir réttindum allra barna og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og höfum að leiðarljósi að börn njóti velferðar – hvar sem þau er að finna.