„Ofbeldisverk hafa enn á ný kostað palestínsk börn á Vesturbakkanum lífið. Þann 14. mars síðastliðinn voru bræður, 5 ára og 7 ára, ásamt foreldrum sínum skotnir til bana af ísraelskum hermönnum í bifreið fjölskyldunnar í bænum Tammun.“
Þannig hefst yfirlýsing Edouard Beigbeder, svæðisstjóra UNICEF í Mið-Austurlöndum og N-Afríku, um hið glórulausa ofbeldisverk. Hann heldur áfram:
„Frá janúar 2025 hafa 65 palestínsk börn verið drepin á Vesturbakkanum, þar með talið Austur-Jerúsalem. Það gerir um eitt barn á viku. Rúmlega 760 hafa særst á þessum tíma. Meirihluta þessara dauðsfalla má rekja til skotárása.“
„Fyrir börnin sem lifa af þessar árásir eru afleiðingarnar oft djúpstæðar. Hvort heldur sem það er vegna örkumlunar eða sálrænna áfalla sem fylgja því að sjá vini og fjölskyldu myrt á hrottafenginn og ofbeldisfullan hátt.“
„UNICEF krefst þess að ísraelsk yfirvöld grípi tafarlaust til afgerandi aðgerða sem miða að því að vernda palestínsk börn og rétt þeirra til lífs og verndar í samræmi við alþjóðalög. Yfirvöld verða að tryggja gagnsæi og ábyrgð þegar börn eru myrt eða limlest og grípa til raunverulegra aðgerða til að draga úr ofbeldi. Ísraelsk stjórnvöld verða sömuleiðis að standa við skyldur sínar um að tryggja hinum særðu aðgang að mannúðar– og læknisaðstoð.“
Samkvæmt umfjöllun fjölmiðla á borð við BBC voru sex fjölskyldumeðlimir í umræddum bíl, tveir unglingspiltar komust lífs af og hafa lýsingar þeirra af atburðarrásinni vakið mikinn óhug.

