Rúmlega þriðjungur barna í Úkraínu, eða 2,6 milljónir, er enn á vergangi nú þegar fjögur ár eru liðin frá upphafi innrásar Rússa Þar af eru rúmlega 791.000 börn á vergangi innan landsins og nærri 1.798.900 börn hafa flúið land.
Neyðst til að flýja oftar en tvisvar
„Milljónir barna og fjölskyldna hafa flúið heimili sín í leit að öryggi, og eitt af hverjum þremur börnum er enn á vergangi fjórum árum seinna. Sífellt erfiðara er fyrir börn í Úkraínu að finna öryggi þar sem árásir á borgaraleg svæði halda áfram víða um landið. Að mörgu leyti eltir stríðið þessi börn,“ segir Regina De Dominicis, svæðisstjóri UNICEF fyrir Evrópu og Mið-Asíu.
Mörg börn hafa neyðst til að flýja heimili sín oftar en einu sinni. Nýleg könnun á vegum UNICEF sýndi að af þeim sem eru á vergangi greindi eitt af hverjum þremur ungmennum á aldrinum 15–19 ára frá því að hafa flúið minnst tvisvar. Öryggi var algengasta ástæðan fyrir flóttanum.
Hrollvekjandi mannfall
Frá 24. febrúar 2022 hafa 3.200 börn verið drepin eða særð í árásum og á síðasta ári jókst mannfall um 10 prósent frá árinu 2024. Samkvæmt gögnum Sameinuðu þjóðanna er þetta í þriðja árið í röð þar sem staðfest mannfall barna eykst.
Eins og gefur að skilja hefur nauðsynleg þjónusta sem börn reiða sig á verið stórlega skert á síðustu fjórum árum og enn er sótt að þessum innviðum og þjónustu. Rúmlega 1.700 skólar og menntastofnanir hafa verið skemmdar eða eyðilagðar með þeim afleiðingum að þriðjungur barna getur ekki sótt nám í eigin persónu, í skólastofu eins og vera ber.
Nýlegar, harðar og kerfisbundnar árásir á orkuinnviði í Úkraínu hafa svo reynst milljónum barna og fjölskyldna þungbær þar sem þau hafa mátt þola kalda daga án hita, rafmagns og vatns í miklum frosthörkum. Þessar árásir á orkuinnviði hafa einnig ógnað starfsemi heilbrigðisstofnana. Staðfest er að bara á síðasta ári voru nærri 200 heilbrigðisstofnanir skemmdar eða eyðilagðar.
Börn að missa vonina fyrir framtíðinni
Andleg heilsa og velferð barna í Úkraínu er einnig áhyggjuefni. Stöðugur ótti við árásir, endalaus dvöl í neðanjarðarbyrgjum, kjöllurum og í einangrun með takmörkuð félagsleg tengsla hafa haft verulega áhrif á börn og ungmenni. Nýleg könnun leiddi í ljós að eitt af hverjum fjórum ungmennum á aldrinum 15–19 ára er að missa vonina um framtíð í Úkraínu, sem undirstrikar brýna þörf fyrir öryggi og stöðugleika, sem og fjárfestingu í þeirri lykilþjónustu og þeim tækifærum sem börn og ungmenni þurfa á að halda.
UNICEF hefur starfað víðs vegar um Úkraínu og í nágrannalöndum, sem taka á móti flóttafólki, til að styðja börn sem hafa orðið fyrir áhrifum af flótta og áframhaldandi ofbeldi, með lífsnauðsynlegri aðstoð og grunnþjónustu. UNICEF veitir aðgang að öruggu vatni, heilbrigðisþjónustu, næringu, menntun, barnavernd og geðheilbrigðis- og sálfélagslegum stuðningi, auk þess að aðstoða við viðgerðir og enduruppbyggingu á mikilvægum innviðum á borð við skóla, heilbrigðisstofnanir og vatnskerfi sem hafa skemmst í árásum.
Árið 2025 náði UNICEF, í samstarfi við stjórnvöld og samstarfsaðila, til 7 milljóna einstaklinga, þar af 2,5 milljóna barna, með mannúðaraðstoð. Endurreisnarverkefni UNICEF, í samstarfi við lands- og sveitarstjórnir, styrktu félagsþjónustu fyrir um 9,8 milljónir manna um allt land.
„Skyldur samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum verður að virða og grípa verður til allra mögulegra ráðstafana til að vernda börn og þá borgaralegu innviði sem þau reiða sig á. Hvert barn á rétt á að alast upp við öryggi og án undantekninga verður að virða þann rétt,“ sagði De Dominicis.

