Ársskýrsla UNICEF á Íslandi fyrir árið 2025 hefur verið birt. Á viðsjárverðum tímum þar sem þjóðarleiðtogar um víða veröld hafa sótt að alþjóðlegu þróunar- og mannúðarstarfi með niðurskurðarhnífa á lofti og skaðlega orðræðu að vopni standa styrktaraðilar UNICEF á Íslandi við bakið á börnum og grunnstoðir mannúðar. Landsnefnd UNICEF á Íslandi býr að góðu baklandi ríflega 22 þúsund Heimsforeldra, samstarfsfyrirtækja og íslenska ríkisins sem halda áfram að fjárfesta í árangri UNICEF í þágu réttinda barna um allan heim.
Stuðningur í heimsklassa
Í ársskýrslu UNICEF á Íslandi, sem hægt er að nálgast í heild sinni hér, kemur fram að heildartekjur ársins 2025 námu 851 milljón króna og þar af voru söfnunartekjur 736 milljónir. Tæplega 71% af heildartekjum síðasta árs komu frá Heimsforeldrum, mánaðarlegum styrktaraðilum UNICEF.
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að enn eitt árið er framlag landsnefndarinnar til verkefna UNICEF hæst allra landsnefnda miðað við höfðatölu auk þess sem við eigum hlutfallslega einn mesta fjölda Heimsforeldra allra landsnefnda í heiminum.
Stærstum hluta heildartekna, eða tæpum 503 milljónum króna, var varið til reglubundins hjálparstarfs UNICEF í þeim löndum þar sem þörfin er mest. Tæpri 49 milljón var varið til neyðar- og uppbyggingarverkefna, tæpum 90 milljónum króna var varið til verkefna innanlands, við réttindagæslu, réttindafræðslu og innleiðingu barnvænna sveitarfélaga, í góðu samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið.
Íslenska ríkið heldur einnig áfram að vera fyrirmyndarstyrktaraðili UNICEF. Há kjarnaframlög og stuðningur miðað við höfðatölu halda áfram að vekja verðskuldaða athygli á tímum þegar fjárfesting í alþjóðlegri þróunarsamvinnu hefur víða dregist saman. Þá héldu samstarfsverkefni íslenska ríkisins og UNICEF áfram í samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu í Síerra Leóne og Úganda. Ítarlega er fjallað um stuðning íslenska ríkisins, sem og fjárhagsupplýsingar landsnefndarinnar á síðasta ári, í ársskýrslunni.
Málsvarar barna á Íslandi
UNICEF á Íslandi er málsvari barna hér á landi sem og annars staðar. Hér á landi leggjum við áherslu á að stjórnvöld virði lög um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og að lögin eigi jafnt við um öll börn sem dvelja hér á landi.
Á árinu var framlengdur samningur við mennta- og barnamálaráðuneytið um innleiðingu Barnasáttmálans í sveitarfélögum, skólum og frístund og unnu 22 sveitarfélög að því í samstarfi við UNICEF á árinu. Tíu sveitarfélög hafa fengið viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög UNICEF, en þar af hlutu átta ný sveitarfélög viðurkenningu sína á árinu. Rúmlega helmingur barna á Íslandi býr nú í sveitarfélögum sem innleiða Barnasáttmálann í samstarfi við UNICEF.
Á árinu hlutu 20 leikskólar, grunnskólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar viðurkenningu Réttindaskóla og -frístundar UNICEF og heldur þeim áfram að fjölga. Í heild hafa 63 starfsstöðvar hlotið viðurkenningu og 71 til viðbótar vinnur að því að fá viðurkenningu. Á grunnskólastigi nær verkefnið til 30% allra barna á grunnskólaaldri á Íslandi. Þetta var því risastórt ár hjá innanlandsteymi okkar sem heldur áfram að vinna þrekvirki í þágu réttinda barna hér á landi.
Hér er aðeins stiklað á stóru í starfi síðasta árs og hvetjum við öll til að lesa nánar um uppgjör, afrakstur og árangur UNICEF á Íslandi í fyrra í nýútkominni ársskýrslu okkar sem hægt er að nálgast hér.
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi:
„Árið 2025 hrikti í grunnstoðum þróunarsamvinnu og mannúðarstarfs í hættulegum og ójöfnum heimi. Þegar ég lít yfir árið fyllist ég engu að síður stolti yfir viðbrögðunum hér og horfi bjartsýn fram á veginn. Landsnefnd UNICEF á Íslandi og hennar ótal samstarfsaðilar um betri framtíð fyrir öll börn standa vaktina og niðurstöður ársins bera því vitni að við munum hvergi hvika í okkar verkefnum, hvorki hér innanlands né alþjóðlega. Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð, en höfum á sama tíma metnað og vilja til að gera enn betur. Fyrir hönd landsnefndar UNICEF á Íslandi þakka ég öllum þeim sem styðja við okkur nú þegar þörf barna hefur aldrei verið meiri. Um leið býð ég öll velkomin að taka sér stöðu í grunnstoðum mannúðar og fjárfesta með okkur í betri heim fyrir öll börn.“
Stjórn UNICEF á Íslandi
Á aðalfundi stjórnar í dag varð ein breyting á stjórn UNICEF á Íslandi. Halldór Friðrik Þorsteinsson kemur nýr inn í stjórn í stað Hjörleifs Pálssonar sem verið hefur varaformaður stjórnar undanfarin ár. Edda Hermannsdóttir er áfram formaður stjórnar. Þökkum við Hjörleifi hjartanlega fyrir ómælt framlag hans til landsnefndarinnar á síðustu árum og bjóðum Halldór Friðrik velkominn.
Stjórn UNICEF á Íslandi er nú þannig skipuð:
Auður Tinna Aðalbjarnadóttir, lögfræðingur.
Bjarni Ármannson, fjárfestir.
Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyfja og heilsu og formaður stjórnar
Guðrún Pétursdóttir, lífeðlisfræðingur.
Gunnar Helgason, rithöfundur og leikari.
Halldór Friðrik Þorsteinsson, viðskiptafræðingur.
Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri.
Tatjana Latinovic, framkvæmdastjóri hugverkadeildar Össurar.
Brynjar Bragi Einarsson, nemi.
Ungmennaráð UNICEF á Íslandi skipar svo tvo áheyrnarfulltrúa.

