UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur hafið neyðarsöfnun vegna afleiðinga jarðskjálfta að stærðinni 7.8 sem varð í Tyrklandi og Sýrlandi í nótt. Söfnun UNICEF nær til Sýrlands og landamæraaðstoðar í Gaziantep þar sem mikill fjöldi flóttafólks heldur til við erfiðar aðstæður.
Tölur látinna og særðra hækka með hverjum klukkutímanum en ljóst að mörg hundruð eru látin og þúsundir særð í Sýrlandi og Tyrklandi. Í Sýrlandi er ástandið metið verst í Aleppo og Latakia, fregnir hafa borist af skemmdum í Hama en ekki hafa borist af fregnir af stöðu mála í Homs og syðri landsvæðum enn sem komið er.
Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna Sýrlands
Ástandið í Sýrlandi var fyrir afar viðkvæmt og neyðin þar mikil. Ljóst er að áhrif hamfaraskjálfta sem þessa mun koma harðast niður á börnum og viðkvæmum hópum sem nú þegar glíma við hápunkt vetrarhörkunnar í landinu í þokkabót.
Angela Kearney, fulltrúi UNICEF í Sýrlandi, var í Aleppo þegar jarðskjálftinn varð:
„Tölur særðra og látinna hækka sífellt. Hér er upplausnarástand og skelfing meðal fólks og barna. Skólum hefur verið lokað og suma er verið að nota sem neyðarskýli.“
Vettvangsteymi UNICEF í Sýrlandi er í þessum skrifuðu orðum að meta aðstæður og er frekari tíðinda að vænta af stöðunni og viðbragði UNICEF síðar í dag.
Sem stendur hafa stjórnvöld í Tyrklandi ekki óskað eftir neyðaraðstoð og beinist ákall þeirra fyrst og fremst að leit og björgun að svo stöddu.
Erfiðar aðstæður í Sýrlandi fyrir skjálftann
Nokkrar staðreyndir um Sýrlandi fyrir jarðskjálftann:
- Stríð staðið yfir í tæp 12 ár.
- Rúmlega 14,6 milljónir einstaklinga, þar af 6,5 milljónir barna, þurfa á mannúðaraðstoð.
- 6,9 milljónir einstaklinga, þar af 3 milljónir barna, eru á vergangi innan landsins eftir að hafa neyðst til að flýja heimili sín.
- Milljónir Sýrlendinga hafa flúið yfir landamærin til nágrannaríkja og víðar og búa í flóttamannabúðum.
- Fyrir hamfarirnar áætlaði UNICEF að þurfa 328,5 milljónir dala til að mæta þörfum sýrlenskra barna.
- Mest er þörfin fyrir mannúðaraðstoð vegna vatns og hreinlætisverkefna (WASH), heilbrigðismála– þar á meðal til að tækla útbreiðslu kóleru), og vegna menntamála.
UNICEF hefur frá upphafi stríðs og allar götur síðan 1970 verið á vettvangi í Sýrlandi til að tryggja velferð og réttindi barna þar í landi. Unnið að því að tryggja börnum skjól, menntun, næringu og heilbrigðisþjónustu. Nú standa Sýrlendingar frammi fyrir enn einni áskoruninni og sem fyrr mun UNICEF standa við bakið á sýrlenskum börnum. Til þess þurfum við þinn stuðning.
Sendu SMS-ið STOPP í númerið 1900 til að styrkja um 1.900 krónur.
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102040 kennitala: 481203-2950
Nánar hér:
Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna Sýrlands