UNICEF á Íslandi fékk heldur betur frábæra heimsókn á dögunum frá nemendum Verzlunarskóla Íslands sem komin voru til að afhenda afrakstur góðgerðarviku skólans þar sem safnað var fyrir börn í Úkraínu.
Óhætt er að segja að fjáröflunarleiðir nemenda hafi verið ótrúlega frumlegar og skemmtilegar þar sem mörg lögðu greinilega mikið á sig fyrir gott málefni með margvíslegum áskorunum.
Meðal annars gistu nokkrir piltar á þriðja ári alla vikuna í nemendaskjallara skólans, tveir nemendur unnu heilan skóladag við afgreiðslu og undirbúning í Matbúð og stúlka á öðru ári var heilan dag á hjólaskautum. Þrjár stúlkur söfnuðu áheitum með því að ganga í skólann alla leið frá Kjalarnesi, alls 25 kílómetra, tveir nemendur á þriðja ári fengu sér húðflúr og einn nemandi litaði hárið á sér bleikt.
Þá var einnig boðið upp á happdrætti, lukkuhjól og sölu veitinga.
Árangurinn var sannarlega glæsilegur en fulltrúar úr góðgerðaráði skólans afhentu alls 900 þúsund krónur í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna Úkraínu.
UNICEF á Íslandi færir nemendum Verzlunarskóla Íslands og öllum sem styrktu söfnunina hjartans þakkir fyrir stuðninginn. Þvílíkir snillingar.