20. ágúst 2026

„Mamma, mér er svo heitt“ – Réttindi barna í heitari heimi

UNICEF á Íslandi kallar eftir metnaði og stórhug frá íslenskum stjórnvöldum og atvinnulífi í loftslagsmálum – Ársfundur UNICEF var hnattrænn hitafundur 

Heimur í hættu. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, fer yfir niðurstöður loftslagsskýrslu UNICEF á ársfundi landsnefndarinnnar í dag. Mynd: Laufey Björk

UNICEF á Íslandi kallar eftir því að stjórnvöld og fyrirtæki hér á landi taki höndum saman og sýni bæði metnað og stórhug í loftslagsmálum þegar í stað. Þetta var meðal þess sem fram kom á ársfundi landsnefndar UNICEF á Íslandi sem fram fór í Sjóminjasafninu í Reykjavík í dag. 

Þó Edda Hermannsdóttir, formaður stjórnar UNICEF á Íslandi, hafi sett fundinn og farið yfir árangur og afkomu landsnefndar UNICEF á Íslandi, á síðasta ári var fundurinn að þessu sinni helgaður loftslagsmálum og áhrifum þeirra á réttindi barna um allan heim. Tilefnið er enda ærið. Fyrr í sumar birti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, skýrsluna Children‘s Climate Risk Report 2026, sem er ein ítarlegasta samantekt sem gerð hefur verið á áhrifum loftslagsvárinnar á börn. Fjallað var niðurstöður skýrslunnar á fundinum sem voru meðal annars að nær helmingur allra barna veraldar, eða 1,1 milljarður barna, býr nú við að minnsta kosti þrjár samverkandi loftslagshættur sem ógna heilsu þeirra, menntun og lífsafkomu samkvæmt. Nánast öll börn heims standa frammi fyrir minnst einni loftslagshættu.  

Takið höndum saman! 

Í máli Birnu á fundinum kom fram krafa og ákall ársfundarins og UNICEF á Íslandi í loftslagsmálum sem beint er að stjórnvöldum og atvinnulífinu hér á landi.  

UNICEF á Íslandi kallar eftir því að stjórnvöld og fyrirtæki taki höndum saman um að:  

  • Setja metnað og stórhug í minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda, með réttlátum orkuskiptum og útfösun jarðefnaeldsneytis.   
  • Tryggja vernd og velferð barna þegar samfélag og vinnulag er lagað að breyttum heimi og brugðist er við skaðanum sem þegar er orðinn.  
  • Tryggja börnum og ungmennum rödd og hlutverk í samtali og ákvörðunum um úrlausnarefnin.  

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi:  

„Við erum að gera allt of lítið til að auka getu samfélaga til að bregðast við þessum ógnum og tryggja börnum örugga framtíð í heitari heimi. Þetta er ekki óræðið framtíðartal og hér duga ekki nokkur græn skref. Þetta er að gerast núna. Öll börn eru í nokkurri hættu og annað hvert barn, yfir milljarður barna, er í verulegri hættu vegna loftslagsvárinnar. Þú þarft ekki annað en að horfa á heimskort af mestu hættusvæðum ógna sökum loftslagsbreytinga til að sjá að hér er öll Jörðin undir. Von er ekki hugsun heldur athöfn. Börn verða að sjá að við tökum framtíð þeirra alvarlega og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að hún sé örugg - og mögulega farsæl, þrátt fyrir allt. Það er það minnsta sem við getum gert í stærstu áskorun allra jarðarbúa. Og við getum byrjað hér á Íslandi.“ 

Á fundinum fóru einnig fram pallborðsumræður um loftslagsmál þar sem Bjarni Már Magnússon, doktor í lögfræði og fulltrúi loftslagsráðs, Brynjar Bragi Einarsson, fulltrúi ungmenna í stjórn UNICEF á Íslandi, og Ísadóra Ísfeld, aðstoðarfræðslufulltrúi Ungra Umhverfissinna tóku þátt ásamt Birnu Þórarinsdóttur framkvæmdastjóra. Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsstarfs UNICEF stýrði pallborðinu.   

Birna fer yfir ákall UNICEF í loftslagsmálum. Mynd: Laufey Björk
Bjarni Már Magnússon, Birna Þórarinsdóttir, Brynjar Bragi Einarsson, Ísadóra Ísfeld og Eva Bjarnadóttir í pallborðsumræðunum í dag. Mynd: Laufey Björk
Fleiri
fréttir

20. ágúst 2026

„Mamma, mér er svo heitt“ – Réttindi barna í heitari heimi
Lesa meira

18. ágúst 2026

Samstarf Kviku og UNICEF skilar meiru til barna
Lesa meira

12. ágúst 2026

UNICEF styður börn og fjölskyldur í kjölfar jarðskjálftans stóra í Kólumbíu
Lesa meira
Fara í fréttasafn