Fjáröflunarverkefni UNICEF á Íslandi „Komum því til skila“ hlaut fyrr á þessu ári Takk viðurkenninguna 2021 sem besta fjáröflunarverkefnið í fyrra. Flóki Guðmundsson, sérfræðingur í fjáröflun hjá Takk afhenti landsnefnd UNICEF á Íslandi viðurkenningargrip vegna þessa í dag.
Í umsögn Takk viðurkenningarinnar um Komum því til skila segir:
„Samhliða bólusetningarátaki íslenskra stjórnvalda vegna COVID-19 stóð UNICEF á Íslandi fyrir fjáröflunarherferð undir yfirskriftinni Komum því til skila. Safnað var fyrir COVAX-samstarfinu svokallaða þar sem markmiðið er að tryggja að þegnum fátækustu ríkja heims standi einnig til boða bóluefni.
Fjölbreyttir miðlar voru nýttir til að ná til almennings. Líklega spilaði þar stærstan þátt heimild til að vekja athygli á söfnuninni í Laugardalshöll þegar fjöldabólusetningar fóru fram og ljóst að mikill fjöldi fólks vildi þakka fyrir eigin bólusetningu með því að senda sms-skilaboð sem styrkti dreifingu bóluefnis fyrir þrjá einstaklinga.
Fyrirtæki voru sömuleiðis áhugasöm um að leggja framtakinu lið og voru farnar fjölbreyttar fjáröflunarleiðir á meðal þeirra.
Um var að ræða stærstu einstöku neyðarherferð UNICEF á Íslandi og söfnuðust alls 48 milljónir.
Komum því til skila er fyrirmyndardæmi um margþætta fjáröflunarherferð, sem beindist bæði að almenningi og fyrirtækjum, þar sem samkenndin sem skapaðist í heimsfaraldrinum var virkjuð.“
UNICEF á Íslandi þakkar kærlega fyrir viðurkenninguna og öllum þeim sem styrtktu eða lögðu verkefninu lið.