Sjö börn eru látin og 38 særð eftir loftárásir og stigmagnandi átök í Líbanon síðastliðinn sólarhring. Frá þessu greinir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, í dag og hefur eftir heilbrigðisráðuneyti Líbanon.
Árásirnar á Líbanon hafa þegar valdið gríðarlegum fólksflótta og bætt gráu ofan á svart í viðkvæmu mannúðarástandi í landinu. Bara síðastliðinn sólarhring hafa nærri 60 þúsund einstaklingar, þar af 18 þúsund börn, neyðst til að flýja heimili sín. Rúmlega 12 þúsund fjölskyldur hafa leitað skjóls í rúmlega 300 neyðarskýlum sem komið hefur verið upp víðsvegar um landið. Tugir þessara tjalda eru þegar yfirfull.
„Ekkert barn ætti nokkru sinni að vera drepið eða þurfa að bera ævilöng líkamleg og andleg ör vegna ofbeldis,“ sagði Marcoluigi Corsi, fulltrúi UNICEF í Líbanon. „Ofbeldið verður að stöðva. Börn verða ávallt að njóta verndar.“
Þar sem þörfin eykst hratt hefur UNICEF aukið neyðaraðgerðir sínar til að ná til fjölskyldna og barna með lífsnauðsynlega mannúðaraðstoð. Viðbragðsteymi hafa verið send á sameiginleg neyðarskýli til að afhenda nauðsynjar og hjálpargögn, mikilvægum sjúkragögnum hefur verið dreift á opinberar heilbrigðisstofnanir í samvinnu við heilbrigðisráðuneyti landsins.
Færanleg heilbrigðisteymi, sem UNICEF styður við, hefur verið fjölgað í 37 til að veita ráðgjöf, bólusetningar og bráðaheilbrigðisþjónustu fyrir fjölskyldur á flótta. Stuðningi við sjúkrahús hefur einnig verið viðhaldið til að tryggja aðgengi að nýburadeildum og gjörgæslu barna fyrir viðkvæmustu börnin.
Í neyðarskýlum leggja UNICEF og samstarfsaðilar áherslu á sálfélagslegan stuðning, barnaverndarþjónustu og samfellu í námi, meðal annars með net- og fjarkennslulausnum. Næringarbirgðir hafa verið forstaðsettar og barnaverndarteymi bera kennsl á og aðstoða slösuð, fylgdarlaus börn og börn sem orðið hafa viðskila við foreldra sína.
Fjárþörf viðbragðs- og viðbúnaðaráætlunar UNICEF til að ná til einnar milljónar einstaklinga í neyð í Líbanon nemur 48 milljónum Bandaríkjadala. Enn sem komið hefur aðeins náðst að safna 16% þeirrar fjárhæðar.
UNICEF ítrekar ákall sitt til allra aðila um að standa við skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum, vernda almenna borgara – sérstaklega börn – og tryggja öruggt og óhindrað aðgengi að mannúðaraðstoð.

