Minnst 16 manns létu lífið og rúmlega 140 særðust, þar af 23 börn, eftir árás Rússa á verslunarmiðstöð í Kryvyi Rih þann 21. ágúst síðastliðinn. Önnur árás á Mykolaiv sama dag varð 3 börnum að bana. Fjöldi barna sem nú láta lífið og særast í árásum hefur ekki verið meiri í rúm fjögur ár miðað við júlímánuð.
17 börn voru drepin og 166 særðust í júlí samkvæmt Mannréttindaeftirliti Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu. Það er 49% aukning milli mánaða.
„Það er verið að drepa börn og særa á heimilum þeirra og leikvöllum. Skólar og sjúkrahús verða fyrir árásum. Allt of mörg ung líf hafa glatast eða breyst varanlega. Þetta er fullkomlega óásættanlegt. Börn þurfa frið,“ segir Anne-Claire Dufay, fulltrúi UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Úkraínu.
Sameinuðu þjóðirnar hafa staðfest að 3.946 börn hafa verið drepið eða særð í árásum í Úkraínu síðan innrásarstríð Rússa hófst í febrúar 2022. Er talið að raunverulegur fjöldi kunni að vera enn meiri. UNICEF og samstarfsaðilar halda áfram að veita börnum og fjölskyldum í Úkraínu nauðsynlega mannúðar- og neyðaraðstoð og stuðning á öllum sviðum.
UNICEF kallar enn á ný eftir því að öllum árásum í þessu stríði sem drepa og særa börn verði hætt. Og að staðið verði að fullu við skuldbindingar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum um vernd barna og þeirra grunninnviða sem þau reiða sig á.
Þú getur styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Úkraínu hér.

