Akraneskaupstaður varð í dag fimmta sveitarfélagið á Íslandi til að hljóta viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag UNICEF við skemmtilega athöfn á Akranesi í dag. Í fylgd með starfsfólki bæjarins heimsóttum við alla leik- og grunnskóla bæjarins þar sem áfanganum var fagnað með söng og dansi fyrir börn og starfsfólk. Með Akraneskaupstað búa nú rúmlega 21 þúsund börn í sveitarfélögum sem hlotið hafa þessa viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi, eða sem nemur nærri 25% allra barna á Íslandi.
Það var í maí árið 2020 sem Akraneskaupstaður, UNICEF á Íslandi og þáverandi félags- og barnamálaráðherra undirrituðu samstarfssamning um að Akranes myndi hefja þá vegferð að gerast Barnvænt sveitarfélag UNICEF. Vel hefur verið haldið utan um innleiðingu laga um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hjá sveitarfélaginu og hún unnin samhliða innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Hefð fyrir þátttöku barna og metnaðarfull áætlun
Á Akranesi er löng hefð fyrir þátttöku barna en þar hefur bæjarstjórnarfundur unga fólksins verið haldinn frá árinu 2003. Jarðvegurinn var því frjór og mikil reynsla til staðar þegar kemur að því að styrkja þátttöku barna í starfsemi sveitarfélagsins enn frekar.
Á innleiðingartímabilinu var skipan í ungmennaráð breytt sem og undirbúningi og framkvæmd barnaþings sem ungmennaráðið sér nú alfarið um með stuðningi starfsmanna bæjarfélagsins. Þetta hefur haft þau jákvæðu áhrif að ungmennin eru vel undirbúin og eftirfylgni mála sem sprottið hafa upp frá barnaþingi og bæjarstjórnarfundi unga fólksins hafa í síauknum mæli ratað á borð nefnda og ráða sveitarfélagsins.
Akraneskaupstaður skilaði metnaðarfullri aðgerðaáætlun í 17 liðum sem allar voru að fullu framkvæmdar á innleiðingartímabilinu. Aðgerðir á borð við:
- „Farsælt frístundastarf fyrir öll börn“ sem var hluti af heildstæðri sýn Akraneskaupstaðar á inngildandi þjónustu og byggir á þeirri stefnu að tryggja jafnan aðgang allra barna að íþrótta- og tómstundastarfi.
- Útikennslusvæði var komið upp í Skógræktinni á Akranesi, með því markmiði að styðja við fjölbreytt kennsluform og auka möguleika barna til náms og þátttöku í náttúrulegu umhverfi.
- Haustið 2024 fékk Brúin forvarnarhópur styrk úr Þróunarsjóði skóla- og frístundaráðs til að búa til Forvarnaráætlun barna og ungmenna á Akranesi.
- Bætt aðgengi fatlaðra barna að útisvæðum og leiktækjum í leik- og grunnskólum Akraneskaupstaðar.
- Spjallaraverkefnið: sem ætlað er að tryggja að öll börn hafi aðgang að einhverjum sér eldri til að tala við. Eldri nemendur spjalla við yngri börn, hlusta á þau og tengjast þeim á jafningjagrundvelli og starfsmenn félagsmiðstöðvar spjalla við unglinga.
UNICEF á Íslandi óskar öllum Skagamönnum til hamingju með viðurkenninguna og áfangann.
Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri Akraness:
„Með þessu verkefni er verið að valdefla börn. Þau læra að nota leikreglur lýðræðislegrar umræðu til að láta rödd sína heyrast. Það er einmitt þannig sem við eflum lýðræði okkar – með því að kenna og þjálfa börn til þátttöku í opinni umræðu. Með slíkri þjálfun valdeflum við einstaklinga til virkar lýðræðislegrar þátttöku.“
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi:
„Akraneskaupstaður hefur nú áunnið sér viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag UNICEF af sinni þekktu elju og metnaði í góðu samstarfi barna, ungmenna og fullorðinna í bænum. Akranes bjó að góðri reynslu af þátttöku barna og hefur rödd þeirra enn verið styrkt á innleiðingartímabilinu og styrkari stoðum rennt undir merkingarbæra þátttöku þeirra og eru þau þegar farin að láta til sín taka á vettvangi bæjarmála. Sú vinna sem skilar Akraneskaupstað þessari viðurkenningu nú og sú áframhaldandi vinna sem framundan er gerir Akranes að enn betri bæ fyrir börn- og þar með öll sem þar búa.“
--------------------------------------
Um verkefnið Barnsvæn sveitarfélög
Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996. Verkefnið byggir jafnframt á efni frá umboðsmönnum barna í Noregi og Svíþjóð og UNICEF í Finnlandi. UNICEF á Íslandi hefur umsjón með verkefninu en verkefnið er stutt af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Nánar um verkefnið á vefsíðu Barnvænna sveitarfélaga.