09. mars 2026

83 börn drepin í Líbanon í liðinni viku: „Þetta eru skelfilegar tölur“

Yfirlýsing frá svæðisstjóra UNICEF í Mið-Austurlöndum vegna átaka í Líbanon

Börn og fjölskyldur þeirra á flótta.

„Það er gríðarlega alvarlegt og mikið áhyggjuefni hversu hrikalegar afleiðingar aukin átök í Líbanon eru að hafa á börn,“ segir í yfirlýsingu Edouard Beigbeder, svæðisstjóra UNICEF í Mið–Austurlöndum og Norður–Afríku, sem lesa má í heild sinni hér fyrir neðan.

„Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafa minnst 83 börn verið drepin og 254 særst síðan 2. mars síðastliðinn þegar átök hófu að stigmagnast. Að meðaltali hafa því rúmlega tíu börn verið drepin á dag víðs vegar um Líbanon á einni viku, og önnur 36 særð.“

„Síðustu 28 mánuði hafa alls 329 börn verið drepin í Líbanon og 1.632 særð, á aðeins síðustu sex dögum hefur fjöldi látinna aukist um 25 prósent og hefur heildarfjöldinn nú náð 412 börnum. Þetta eru skelfilegar tölur. Þær sýna með skýrum hætti þann þunga toll sem átök taka á börnum. Á meðan loftárásir halda áfram um allt land munu börn halda áfram að láta lífið og særast. Fjölskyldur eru að flýja heimili sín af ótta og þúsundir barna sofa nú úti í kuldanum í yfirfullum neyðarskýlum.“

„700 þúsund manns, víðs vegar um Líbanon hafa flúið heimili sín, þar á meðal 200 þúsund börn. Fyrir voru enn tugir þúsunda enn á vergangi frá fyrri átökum.“

„UNICEF ítrekar ákall sitt um að allir aðilar verndi almenna borgara og nauðsynlega borgarlega innviði eins og skóla og neyðarskýli. Og virði þannig skyldur sínar gagnvart alþjóðlegum mannúðarlögum.

„UNICEF kallar sömuleiðis eftir tafarlausum aðgerðum til að draga spennu, hernaði og árásum til að koma í veg fyrir frekari skaða á börnum. “


Fleiri
fréttir

09. mars 2026

83 börn drepin í Líbanon í liðinni viku: „Þetta eru skelfilegar tölur“
Lesa meira

06. mars 2026

Talið að 180 börn hafi verið drepin í árásum á Íran
Lesa meira

04. mars 2026

Börn bera þungann af árásum á Líbanon
Lesa meira
Fara í fréttasafn