Ákall fyrir
Afganistan
Hjálpaðu
Hringdu í 907-3010 og gefðu 3.000 krónur.
Sendu SMS-ið BARN í númerið 1900 til að styrkja um 2.900 krónur (Síminn og Nova).
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög er: 701-26-102030 Kennitala: 481203-2950.
Þörf fyrir mannúðaraðstoð í Afganistan hefur aukist gríðarlega undanfarin ár að UNICEF talar um fordæmalaust ástand. 28,3 milljónir einstaklinga, rúmlega 65% þjóðarinnar þurfa á mannúðaraðstoð að halda. Kerfisbundið er vegið að réttindum kvenna og stúlkna í landinu og útilokun þeirra frá áframhaldandi menntun og atvinnumarkaði auk þess sem íþyngjandi reglur sem á þeim hvíla setja velferð þeirra og öryggi í aukna hættu. Áhrif þessa munu leggjast á komandi kynslóðir.
Efnahagskreppan í landinu þýðir að rúmlega 60% heimila ná ekki endum saman. Rúmlega ein milljón barna undir fimm ára aldri glímir við alvarlega vannæringu, viðvarandi þurrkar, vetrarhörkur og aðrar loftslagshamfarir gera það að verkum að almenningur er við heljarþröm.
UNICEF hefur verið á vettvangi fyrir konur og börn í Afganistan í tæp 70 ár og verður þar áfram að aðstoða í þeirri miklu þörf sem þar ríkir. Með þínum stuðningi hjálpar þú UNICEF að tryggja afgönskum fjölskyldum vernd, næringu, vatn, sjúkragögn, heilbrigðisþjónustu og áframhaldandi menntun fyrir stúlkur.