{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/yfir-1900-born-munadarlaus-eda-adskilin-fjolskyldum-vegna-ebolu-i-kongo","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/yfir-1900-born-munadarlaus-eda-adskilin-fjolskyldum-vegna-ebolu-i-kongo","uid":"yfir-1900-born-munadarlaus-eda-adskilin-fjolskyldum-vegna-ebolu-i-kongo","type":"post","prismicId":"asTDkhIAACcA4wFp","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-10-06T09:47:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/BKGpcDVfY8ImFem5_UN0901195.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C186%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/BKGpcDVfY8ImFem5_UN0901195.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=27%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/BKGpcDVfY8ImFem5_UN0901195.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=523%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Ebólufaraldurinn geisar áfram í Ituri og Norður-Kivu. UNICEF kallar eftir stuðningi til að tryggja vernd barna sem misst hafa umönnunaraðila."},"page_title":{"text":"Yfir 1.900 börn munaðarlaus eða aðskilin fjölskyldum sínum vegna ebólufaraldurs í Kongó"},"image_text":{"text":"Móðir og barn fá bólusetningu í Bunia í Ituri–héraði. Mynd: UNICEF/UN0901195/Benekire "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"674b42d6-9cc1-5249-ba2d-f7d44e5a86e0","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Ríflega 1.900 börn hafa misst annað eða báða foreldra sína eða orðið viðskila við umönnunaraðila vegna ebólufaraldursins í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó frá því faraldri var lýst þar yfir í maí. Frá þessu greinir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, í dag.

Skaðleg keðjuverkun í lífi barna

Af þessum börnum hafa kennsl verið borin á 1.581 þeirra í Ituri og 322 í Norður-Kivu, miðað við stöðuna 28. september. Raunverulegur fjöldi er líklega hærri þar sem tölurnar ná aðeins til þeirra svæða þar sem UNICEF starfar með héraðsyfirvöldum í félagsmálum (DIVAS).

„Ebóla getur á augabragði sett af stað skaðlega keðjuverkun atburða sem bitna verst á börnum,“ segir Lucia Elmi, framkvæmdastjóri neyðaraðgerða UNICEF, eftir heimsókn til Bunia, þar sem faraldurinn er hvað verstur. „Foreldri veikist og barn getur orðið fyrir smiti. Foreldrið er síðan lagt inn á sjúkrahús eða deyr og barnið stendur eftir án forráðaaðila og ótti við smit og fordómar gera ættingjum og nágrönnum erfitt um vik að grípa inn í.“

Auk þess hafa 214 börn fundist sem búa og starfa á götum Bunia og þau skilgreind sem börn í brýnni þörf á vernd. Án umönnunaraðila eru þau í meiri hættu á að smitast, ólíklegri til að nást með smitrakningu eða fá aðhlynningu ef þau veikjast og eiga jafnframt í aukinni hættu á ofbeldi og misnotkun.

Börn verða einnig fyrir mestum áhrifum af faraldrinum. Samkvæmt greiningu UNICEF á gögnum heilbrigðisyfirvalda, þar sem aldur liggur fyrir, höfðu að minnsta kosti 2.076 börn greinst með ebólu og 1.162 látist af völdum sjúkdómsins til og með 29. september síðastliðnum. Börn eru rúmlega fjórðungur staðfestra tilfella en um þriðjungur þeirra sem hafa látist. Yngstu börnin eru í mestri hættu. Sjö af hverjum tíu börnum yngri en fimm ára sem hafa greinst með ebólu hafa látist, samanborið við sex af hverjum tíu fyrir aðeins nokkrum vikum. Mörg þessara barna deyja áður en þau ná að komast í meðferð.

„Í Bunia hitti ég Linu*, sjö mánaða gamalt barn sem lifði af ebólu eftir að hafa misst móður sína úr sjúkdómnum,“ segir Elmi. „Saga hennar minnir okkur á að það er ekki nóg að meðhöndla barn við ebólu. Barnagæslurými þurfa að vera fastur liður í öllum meðferðarstöðvum fyrir ebólu. Þau vernda börn og veita foreldrum öryggi til að leita sér meðferðar, vitandi að börn þeirra eru örugg og innan seilingar.“

Á landsvísu höfðu alls 8.224 ebólutilfelli verið staðfest og 3.982 manns látist af völdum sjúkdómsins í sjö héruðum 29. september. Flest tilfelli eru enn í Ituri en smit greinast áfram í Norður-Kivu.

Jafnvel áður en þessi faraldur hófst bjuggu börn í austurhluta Kongó við eina langvinnustu mannúðarkrísu heims. Veiran breiðist nú út á svæðum þar sem um 4,4 milljónir manna hafa neyðst til að vera á vergangi síðustu misseri. Átök, fólksflótti og vantraust gera snemmgreiningu sjúkdómsins erfiðari.

UNICEF er á vettvangi fyrir börn

UNICEF styður rekstur 12 barnagæslurýma við ebólumeðferðarstöðvar í Ituri, Norður-Kivu og Suður-Kivu. Þar fá ung börn örugga og barnvæna umönnun ef þau hafa orðið fyrir smiti, eru án fylgdar eða ef umönnunaraðili þeirra er í meðferð. Einnig er fylgst náið með einkennum og börnum vísað hratt í barnalæknisþjónustu innan meðferðarstöðvanna.

Í samstarfi við DIVAS hefur UNICEF veitt börnum sem faraldurinn hefur haft áhrif á stuðning, meðal annars með því að leita að fjölskyldum, sameina fjölskyldur og finna börnum aðra viðeigandi umönnun. Þjónusta á vegum UNICEF hefur náð til 90.600 einstaklinga með fræðslu- og stuðningsviðtölum og yfir 15.900 fjölskyldumeðlimir hafa fengið sálfélagslegan stuðning á heimilum sínum.

UNICEF skorar á stjórnvöld, styrktaraðila og samstarfsaðila að:

tryggja tafarlaust barnagæslurými við allar ebólumeðferðarstöðvar.

tryggja vandaða læknisþjónustu

fjölga félagsráðgjöfum og starfsfólki sem veitir sálfélagslegan stuðning á þeim heilbrigðissvæðum þar sem faraldurinn er útbreiddastur.

tryggja fjármagn til barnagæslurýma, stuðnings við börn og fjölskyldur, fjölskyldusameiningar, stuðnings við fóstur- og stórfjölskyldur og þess að börn geti snúið aftur í skóla.

UNICEF varar loks við því að viðbragðsaðgerðir við ebólufaraldrinum séu verulega vanfjármagnaðar sem stendur. Brýnt sé að bæta úr því til að efla viðbragð í Kongó, draga úr hættu á frekari útbreiðslu yfir landamæri og tryggja viðbúnað í 11 nágrannaríkjum.

* Nafni barnsins hefur verið breytt til að vernda friðhelgi þess og auðkenni.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"asTDkhIAACcA4wFp"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}