{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/urhelli-a-gaza-kostadi-thrju-born-og-modur-theirra-lifid","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/urhelli-a-gaza-kostadi-thrju-born-og-modur-theirra-lifid","uid":"urhelli-a-gaza-kostadi-thrju-born-og-modur-theirra-lifid","type":"post","prismicId":"avLnjhIAACkAjwAC","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-11-10T09:46:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/vx9W2M_Z8uGbTTpE_UNI1032193.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C105%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/vx9W2M_Z8uGbTTpE_UNI1032193.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=25%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/vx9W2M_Z8uGbTTpE_UNI1032193.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=380%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"„Fjölskyldur búa við aðstæður þar sem þeim er ekki einu sinni tryggt það grundvallaröryggi, heilbrigði og sú reisn sem hverri manneskju ber.“"},"page_title":{"text":"Úrhelli á Gaza kostaði þrjú börn og móður þeirra lífið"},"image_text":{"text":""},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"3f88d06d-4e46-55d3-a2cb-6a7fd62259c0","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Þrjú börn, á aldrinum fjögurra, fimm og átta ára, létust ásamt móður sinni um helgina þegar sandhóll féll yfir tjald þeirra í Deir al-Balah í miðhluta Gaza í kjölfar mikillar úrkomu.
Úrhellið hafði bein áhrif á 106.000 manns og olli skemmdum á neyðarskýlum, salernisaðstöðu og eigum fólks. Talið er að um 950.000 manns á flótta búi á svæðum Gaza þar sem hætta er á flóðum. Þar af eru um 400.000 manns á svæðum þar sem hættan er sérstaklega mikil, og tæplega helmingur þeirra eru börn.
Erfiðasti hluti vetrarins enn fram undan
„Þessi börn og móðir þeirra létust vegna þess að þau höfðu engan öruggan stað til að sofa á. Þetta er veruleikinn á Gaza í dag,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Fjölskyldur búa við aðstæður þar sem þeim er ekki einu sinni tryggt það grundvallaröryggi, heilbrigði og sú reisn sem hverri manneskju ber. Fleiri börn gætu látist ef ekki verður tryggt viðunandi skjól, vatns- og fráveitukerfi sem virka og nauðsynlegur búnaður til að koma grunnþjónustu aftur í gagnið. Erfiðasti hluti vetrarins er enn fram undan.“
Örmagna fjölskyldur búa sig nú undir að takast á við fjórða veturinn í neyðarástandinu á Gaza. Um 1,7 milljónir manna á flótta búa enn í tjöldum, bráðabirgðaskýlum eða skemmdum byggingum þar sem þær eru berskjaldaðar fyrir flóðum, kulda og hrunhættu húsnæðis.
Leyfi ekki fengist fyrir nauðsynlegum búnaði
Flóðin nú bæta gráu ofan á svart í þeirri hreinlætiskrísu sem stríðið hefur valdið. Engin skólphreinsistöð á Gaza er nú starfrækt. Í Gaza-borg er hætta á að regnvatn, sem blandast hefur skólpi, flæði yfir bakka í fráveitutjörninni í Sheikh Radwan, en þar eru aðeins tvær af sex dælum enn í notkun. UNICEF hefur í meira en ár reynt að fá samþykki ísraelskra yfirvalda fyrir því að flytja inn nauðsynlegan búnað til að gera við mannvirkið.
Kuldi er jafnframt lífshættuleg ógn, ekki síst fyrir nýbura. Síðasta vetur var tilkynnt um að 11 börn hefðu látist úr ofkælingu. Án viðunandi verndar skapa sífellt verri aðstæður raunverulega hættu á að fleiri börn látist þegar veturinn skellur á.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyImage","id":"9e41b40c-1b10-5f81-9748-9dda8959387d","primary":{"image_text":{"text":""},"image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/-tSlTX-DpIiJpXog_UNI1032298.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C0%2C1535%2C1024&w=1616&h=1078","thumbnails":{"featuresize":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/-tSlTX-DpIiJpXog_UNI1032298.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C201%2C1536%2C728&w=2322&h=1100"}}}},"slice_label":null,"slice_type":"image"},{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"8144c002-6fc7-5647-872c-9a4839eaf498","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
UNICEF er á vettvangi að aðstoða
UNICEF og samstarfsaðilar dreifa nú vatnsheldum yfirbreiðslum, vetrarfatnaði, teppum og hreinlætisvörum. Jafnframt er unnið að því að hreinsa stíflaðar fráveitulagnir og regnvatnstjarnir og koma fyrir sandpokum á viðkvæmum svæðum til að draga úr áhrifum flóða. Í síðustu viku náði UNICEF til að minnsta kosti 10.000 barna með vetrarfatnað og hitateppi, dreifði vatnsheldum yfirbreiðslum til fjölskyldna sem höfðu orðið fyrir tjóni af völdum flóða í tjöldum sínum og hreinsaði skólp og regnvatn á meira en 50 stöðum.
Neyðaraðstoðin er lífsnauðsynleg en hún er ekki langtímalausn. Tjöld og vatnsheldar yfirbreiðslur veita litla vörn gegn miklum stormum og skemmd vatns- og fráveitukerfi halda áfram að ógna heilsu og lífi barna.
Ákall UNICEF
UNICEF skorar á ísraelsk yfirvöld að heimila tafarlausan innflutning á dælum, rafstöðvum, varahlutum og öðrum nauðsynlegum búnaði til að gera við vatns- og fráveitukerfi, þar á meðal regnvatnstjörnina í Sheikh Radwan og skólphreinsistöðina í Sheikh Ejleen.
UNICEF hvetur alþjóðasamfélagið til að taka undir kröfuna um að öllum lífsnauðsynlegum mannúðargögnum og búnaði verði hleypt inn á Gaza og að veita tafarlaust fjármagn til vetraraðstoðar UNICEF á Gaza, sem nemur 97,5 milljónum bandaríkjadala.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"avLnjhIAACkAjwAC"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}