{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/thusundir-barna-i-haettu-eftir-ofluga-jardskjalfta-i-venesuela","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/thusundir-barna-i-haettu-eftir-ofluga-jardskjalfta-i-venesuela","uid":"thusundir-barna-i-haettu-eftir-ofluga-jardskjalfta-i-venesuela","type":"post","prismicId":"aj4_LRIAADIAYGpJ","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-06-26T09:09:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aj5B31bRV8_Qf6HQ_UN0876280.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C896%2C6090%2C2885&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aj5B31bRV8_Qf6HQ_UN0876280.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=117%2C0%2C5795%2C4060&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aj5B31bRV8_Qf6HQ_UN0876280.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=1755%2C0%2C2539%2C4060&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"UNICEF vinnur náið með stjórnvöldum og samstarfsaðilum að því að meta þarfir þeirra sem urðu fyrir áhrifum jarðskjálftanna og styðja við neyðarviðbragð"},"page_title":{"text":"Þúsundir barna í hættu eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela"},"image_text":{"text":"Mynd: UNICEF/UN0876280/QUINTERO/AFP "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"08395a7b-726f-5d8f-8b2d-4c7d9cfb90c5","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
25. júní 2026 – Talið er að um 3,9 milljónir barna búi á þeim svæðum í Venesúela sem urðu fyrir áhrifum tveggja öflugra jarðskjálfta, 7,5 og 7,2 að stærð, sem urðu þann 24. júní síðastliðinn. Þúsundir barna og fjölskyldna þeirra eru nú í hættu að því er fram kemur í tilkynningu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Jarðskjálftarnir höfðu áhrif á samfélög í Caracas og í fylkjunum Aragua, Carabobo, Falcón, La Guaira og Miranda, auk nærliggjandi svæða. Á þeim svæðum sem urðu verst úti hafa tugir bygginga hrunið og samkvæmt fyrstu upplýsingum eru börn meðal þeirra sem létust eða slösuðust. Yfirvöld vinna nú að því að meta umfang tjónsins en fyrstu upplýsingar benda til mikilla skemmda á heimilum, innviðum og grunnþjónustu. Þá er enn hætta á eftirskjálftum.
„Myndirnar sem berast frá Venesúela og frásagnir samstarfsfólks okkar á vettvangi eru átakanlegar,“ sagði Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Hugur okkar er hjá þeim börnum og fjölskyldum sem hafa misst ástvini sína og öllum þeim sem hafa séð líf sitt umturnast. Eftir því sem umfang hamfaranna verður ljósara er brýnt að öryggi, vernd og velferð barna verði í forgangi í viðbrögðum við hamförunum.“
Þegar náttúruhamfarir verða eru börn meðal þeirra sem eru í hvað mestri hættu. Á næstu klukkustundum og dögum geta þau orðið fyrir meiðslum, verið aðskilin frá fjölskyldum sínum, þurft að yfirgefa heimili sín, orðið fyrir sálrænum áföllum og misst aðgang að nauðsynlegri þjónustu á borð við heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni, menntun og barnavernd.
Þúsundir fjölskyldna munu þurfa á brýnni mannúðaraðstoð að halda á meðan mat á tjóninu stendur yfir. Heimili, skólar, heilbrigðisstofnanir, vatnsveitur og aðrir mikilvægir innviðir kunna að hafa orðið fyrir verulegum skemmdum. Slíkt raskar aðgengi að nauðsynlegri þjónustu og eykur hættu fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
UNICEF vinnur náið með stjórnvöldum og samstarfsaðilum að því að meta þarfir þeirra sem urðu fyrir áhrifum jarðskjálftanna og styðja við neyðarviðbragð. Markmiðið er að tryggja börnum og fjölskyldum þeirra aðgang að heilbrigðisþjónustu, verndarúrræðum, sálfélagslegum stuðningi, hreinu vatni og öruggum rýmum fyrir börn.
UNICEF er með starfsfólk á vettvangi og mun áfram styðja við viðbrögð stjórnvalda til að mæta þörfum barna og fjölskyldna þeirra, sérstaklega þeirra barna sem búa við hvað erfiðastar aðstæður. Áður en jarðskjálftarnir urðu hafði aðeins tekist að fjármagna 35% af mannúðaráætlun UNICEF fyrir börn í Venesúela árið 2026, en heildarfjárþörfin nemur 137,6 milljónum Bandaríkjadala.
Neyðarsöfnun fyrir börn í Venesúela:
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"aj4_LRIAADIAYGpJ"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}