{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/postkort-fra-peru","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/postkort-fra-peru","uid":"postkort-fra-peru","type":"post","prismicId":"auByhBEAACcAYR42","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-10-27T09:48:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ixXKhjlIqR5y0kuG_UN0945221.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C221%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ixXKhjlIqR5y0kuG_UN0945221.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=185%2C102%2C1169%2C819&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/ixXKhjlIqR5y0kuG_UN0945221.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=458%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, skrifar af vettvangi í Perú"},"page_title":{"text":"Póstkort frá Perú"},"image_text":{"text":"Birna með starfsfólki næringarmiðstöðvar í Tumbes. "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"2214d302-2023-592d-99a3-2476d2268561","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Börn fá síður blöðrur af sandölum en strigaskóm á göngunni frá Venesúela til Perú, sögðu ungir foreldrar mér sem höfðu gengið þessa hættulegu leið á 19 dögum með tveimur barnungum dætrum sínum. Þau lýstu göngunni fyrir okkur, hvernig þau sváfu á götunni (þau vöktu margar nætur af ótta við umhverfi sitt), vildu ekki þiggja far af ókunnugum af ótta við mannrán eða ofbeldi, heldur gengu allan tímann. Oft þurfti að bera stúlkurnar því þær gátu ekki meir. Ég hitti þau í móttöku- og þjónustumiðstöð fyrir hælisleitendur og aðra í viðkvæmri stöðu í Tumbes, í Norður-Perú, við landamæri Ekvador. Miðstöð þessi er rekin af UNICEF og samstarfsaðilum og aðstoðar að jafnaði um 100 manns á dag, þriðjungur þeirra er börn.
Foreldrarnir sem við ræddum við höfðu ekki lagt af stað með fastan áfangastað í huga en örmögnun úthlutaði þeim Tumbes. Þar hafði maðurinn fundið sér vinnu sem rakari og þau höfðu eignast þriðju stúlkuna, þá 21 dags gömul, og var hún ýmist í fangi mömmu sinnar eða pabba á meðan þau ræddu við okkur. Stelpurnar tvær höfðu ekki þolinmæði til að hanga með fullorðna fólkinu, þær fóru frekar að leika sér á barnasvæðinu en ég hitti þær aftur í mannúðarbúðinni (þar sem skjólstæðingar miðstöðvarinnar fá helstu nauðsynjar) og þar tíndu þær samviskusamlega saman það sem fjölskyldan þurfti: bleiur, blautklúta, dömubindi, skordýrasprey og tannbursta. Þegar við spurðum foreldrana hvað stelpurnar gætu tekið með sér í gönguna löngu var svarið einfalt: Ekkert, nema ein föt til skiptanna og sandalana auðvitað.
Perú hefur tekið á móti 1,5 milljón manna frá Venesúela frá árinu 2018 þegar fólk tók að flýja land í stríðum straumum. Um hálf milljón þeirra eru umsækjendur um alþjóðlega vernd, einnig kölluð hælisleitendur. Fólk heldur áfram að streyma frá Venesúela og eftir jarðskjálftann mikla fyrr á þessu ári hefur fjöldi fylgdarlausra barna og ungmenna aukist. Gangan frá Venesúela til Perú tekur um 20-25 daga, í gegnum Kólumbíu og Ekvador, og flest vilja komast til Lima, höfuðborgar Perú, en hún er um 10 daga ganga til viðbótar frá landamærunum.
"}}},{"__typename":"PrismicPostBodyImage","id":"fc659dbb-ad2c-5874-979a-1608453da77c","primary":{"image_text":{"text":""},"image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/oOKoexgS4PueiG-K_UN0945159.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C0%2C1535%2C1024&w=1616&h=1078","thumbnails":{"featuresize":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/oOKoexgS4PueiG-K_UN0945159.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C33%2C1536%2C728&w=2322&h=1100"}}}},"slice_label":null,"slice_type":"image"},{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"a53dfdd1-fb35-5277-90f6-5ec1950beb50","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Ég er hér stödd sem gestur að sækja fundi með kollegum mínum hjá UNICEF víðs vegar að úr heiminum og heimsækja verkefni UNICEF á vettvangi. Hér fáum við að sjá með eigin augum þau margvíslegu mikilvægu verkefni sem UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sinnir í þágu barna og fjölskyldna. Verkefni sem aldrei birtast okkur í fréttum heima á Íslandi, en eru þó lífsnauðsynleg og hvert og eitt varða á vegferð UNICEF að því að tryggja réttindi allra barna.
Hér, innan um fjölskyldur sem lögðu af stað í hættuför með ekkert nema ein föt til skiptanna og sandala á fótum sér, sé ég með eigin augum mikilvægi hvers einasta Heimsforeldris. Afrakstur okkar samstarfs, okkar sameiginlega markmiðs, að gera heiminn að betri stað. Fyrir öll börn.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"auByhBEAACcAYR42"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}