{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/lamine-yamal-nyr-velgjordarsendiherra-unicef","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/lamine-yamal-nyr-velgjordarsendiherra-unicef","uid":"lamine-yamal-nyr-velgjordarsendiherra-unicef","type":"post","prismicId":"aip7uxEAACoA91Ce","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-06-11T09:12:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aip81alQnVZVEM2O_UN0866787.tif?auto=format%2Ccompress&rect=267%2C405%2C3429%2C1624&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aip81alQnVZVEM2O_UN0866787.tif?auto=format%2Ccompress&rect=852%2C416%2C2318%2C1624&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/aip81alQnVZVEM2O_UN0866787.tif?auto=format%2Ccompress&rect=1324%2C160%2C1251%2C2000&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"Spænska ungstirnið bætist í hóp sendiherra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna og mun leggja áherslu á rétt barna til að leika sér. Í dag er einmitt Alþjóðlegur dagur leiks"},"page_title":{"text":"Lamine Yamal nýr velgjörðarsendiherra UNICEF"},"image_text":{"text":"Lamine Yamal, spilar nú einnig fyrir UNICEF. "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"41d7fb24-396d-5555-b03d-d0fa4280737d","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur útnefnt knattspyrnustjörnuna Lamine Yamal, leikmann Barcelona og spænska landsliðsins, sem nýjasta velgjörðarsendiherra sinn. Tilkynningin er gerð í tilefni þess að í dag er Alþjóðadagur leiks sem einmitt verður áhersluatriði hjá Lamine í störfum hans fyrir UNICEF. Í dag er einnig upphafsdagur Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu, þar sem Lamine verður í eldlínunni með spænska landsliðinu.

Réttur barns til leiks er ein af grunnstoðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mikilvægi leiks óumdeilt fyrir þroska og velferð barna. Og þetta er málefni sem skiptir Lamine miklu máli.

„Ég er ótrúlega stoltur af því að verða velgjörðarsendiherra UNICEF,“ segir Lamine Yamal í tilkynningu. „Þegar ég var að alast upp var fjölskyldan mín, bolti, almenningsgarður og draumur það eina sem ég átti. Að spila fótbolta veitti mér utanumhald, gaf mér tilgang, þá upplifun að ég tilheyrði einhverju og von fyrir framtíðina. Ég veit hversu mikilvægt það er fyrir börn að hafa öruggan stað til að leika sér.  Stað þar sem þau geta notið þess að vera börn, uppgötva heiminn, nota ímyndunarafl sitt og vaxa. Staðan er hins vegar sú að milljónir barna eru að alast upp án slíks öryggis. Þegar börn eru svipt rétti sínum til leiks verða þau af ótrúlega mikilvægum tækifærum til að byggja upp færni, eignast vini og ímynda sér bjartari framtíð.“

Réttur barns til leiks verður því áhersluatriði hjá Lamine sem og að styðja við börn í neyðaraðstæðum. Og Lamine hefur þrátt fyrir ungan aldur sýnt að hann brennur fyrir málefnið. Á Alþjóðadegi barna árið 2024 skrifaði hann og birti áhrifamikið bréf til yngri bróður síns þar sem hann deildi vonum sínum fyrir börn alls staðar. Í fyrra veitti hann hinni 9 ára gömlu Ahinora frá Miðbaugs-Gíneu, heimalandi móður hans, aðgang að samfélagsmiðlunum sínum svo hún gæti sýnt heimsbyggðin frá því hvernig hún upplifir réttindi barna á hverjum degi.

„Frá leikvanginum til alþjóðasviðsins kemur Lamine Yamal með ástríðu og rödd inn í verkefni UNICEF í þágu barna,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Það er okkur sannur heiður að bjóða hann velkominn í hóp velgjörðarsendiherra UNICEF þar sem hann mun standa með réttindum barna til öryggis og leiks.“

Í tilefni Alþjóðadags leiks og tilkynningarinnar hefur UNICEF birt ný gögn um málefnið sem sýna að rúmlega 90 milljónir barna undir 5 ára aldri, eða sem nemur 1 af hverju 7 börnum í heiminum, eiga ekkert til að leika sér með. Ekkert aðkeypt leikfang, engan hlut sem til er á heimilinu eða einfalda muni sem þessa. 80 milljónir barna á aldrinum 2-4 ára, eða sem nemur 1 af hverjum 5 börnum- leika ekki við foreldri eða forráðamann á heimilinu.
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"aip7uxEAACoA91Ce"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}