{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/hungur-og-vannaering-ogna-bornum-i-jemen","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/hungur-og-vannaering-ogna-bornum-i-jemen","uid":"hungur-og-vannaering-ogna-bornum-i-jemen","type":"post","prismicId":"arZCWhEAACkAvumz","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-09-25T09:44:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/QfLWa8WQbR16r-w3_UN0927002.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C118%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/QfLWa8WQbR16r-w3_UN0927002.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=37%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/QfLWa8WQbR16r-w3_UN0927002.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=266%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"„Börn í Jemen hafa þegar misst allt of mikið vegna átaka. Þau eiga ekki að þurfa að missa meira.“"},"page_title":{"text":"Hungur og vannæring ógna börnum í Jemen meðan ofbeldið stigmagnast"},"image_text":{"text":"Ungur drengur í tjaldi fjölskyldu sinnar í Al-Firdous flóttamannabúðunum í Jemen.  Mynd: UNICEF/UN0927002/ALfilastini "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"c966c4c1-113e-5620-b3b5-d589e2630bbc","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Samantekt á ræðu Akhil Iyer, fulltrúa UNICEF í Jemen, á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf í dag:
„Börn víðs vegar um Jemen eru enn á ný þau sem harðast verða úti þegar átökin þar stigmagnast. Leyfið mér að hefja mál mitt í dag ekki á tölum heldur á sögu eins barns.
„Í gær heimsótti ég Al Firdous-flóttamannamiðstöðina í Aden og sá persónulega hversu mikil áhrif það hefur á fjölskyldur og börn að nú séu bardagar hafnir á nýjan leik.
„Þar hitti ég hinn fjögurra ára gamla Taha á færanlegri heilsugæslustöð sem UNICEF styður. Fjölskylda hans hafði nýlega flúið ofbeldi í Mokha-héraði, um 200 kílómetra í burtu, og skilið heimili sitt og eigur eftir.
„Taha þjáist af alvarlegri bráðavannæringu. Móðir hans sagði okkur: „Við flúðum með ekkert. Eini óttinn sem ég hafði var að missa son minn áður en við fyndum hjálp.“
„Saga Taha er því miður ekki einsdæmi.
„Það sem hann og fjölskylda hans ganga í gegnum á sér stað víðs vegar um landið og bitnar á fólki sem þegar er veikburða eftir áralanga matvæla- og næringarkrísu.
„Annar vítahringur er að fara á fulla ferð á ný. Vítahringur sem börn í Jemen þekkja allt of vel:
Átök valda hungri og hungur gerir börn berskjaldaðri fyrir áhrifum átaka.
„Undanfarnar vikur hafa færanleg næringarteymi UNICEF skimað tæplega 2.900 börn á svæðum þar sem öruggt aðgengi að mannúðaraðstoð er tryggt og mögulegt. Þar reyndist meira en eitt af hverjum fjórum börnum þjást af bráðri vannæringu og yfir 200 börn voru með alvarlega bráðavannæringu.
„En þetta gefur aðeins örlitla mynd af því hversu alvarlegt ástandið er í raun.
„Víða um land, jafnvel áður en átök tóku að harðna á ný, var gert ráð fyrir að meira en 2,2 milljónir barna undir fimm ára aldri myndu þjást af bráðri vannæringu árið 2026. Þar af myndi yfir hálf milljón barna þjást af alvarlegri bráðri vannæringu, sem er lífshættulegasta form vannæringar.
„Ofan á þessa alvarlegu stöðu bætist nú að aðgengi að heilbrigðisþjónustu og meðferð við vannæringu hefur raskast. Alltof margar fjölskyldur þurfa nú að leita að mat á flótta.
„Á síðustu þremur vikum hafa nærri 130.000 manns, þar af 71.000 börn, neyðst til að yfirgefa heimili sín. Flest þeirra hafa flúið innan Taiz-héraðs í suðvesturhluta landsins og komast ekki á öruggari svæði vegna átaka, lokaðra vega eða skorts á samgöngum.
„Sumar fjölskyldur hafa þurft að flýja ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur allt að sex sinnum.
„Haifa, ung móðir sem flúði vesturströnd Jemen, sagði okkur: „Skothvellirnir nálguðust og húsið nötraði. Ég hafði engan tíma til að hugsa. Ég vissi bara að ég yrði að hlaupa með fjölskyldunni minni.“
„Í dag búa þau í tjaldi í miklum hita, án tekna og eiga í erfiðleikum með að útvega sér mat og lyf.
„‚Flóttinn hefur rænt okkur reisn okkar,“ segir Haifa.
„Það er það sem flótti gerir. Hann tekur ekki aðeins heimilið frá fólki. Hann tekur líka lífsviðurværið. Samfélagið. Sjálfstæðið. Daglegt líf. Vissuna um að morgundagurinn verði yfirhöfuð líkur deginum í dag.
„Of mörg börn hafa þegar þurft að greiða hæsta verðið í þessum átökum, auk þess að vera hrakin frá heimilum sínum.
„Frá 3. september hefur UNICEF staðfest minnst 15 dauðsföll barna og 14 hafa særst. Þriggja barna er enn saknað.
„Á bak við hvert og eitt þessara barna er foreldri sem þarf að takast á við ólýsanlega sorg, ótta eða sársaukann sem fylgir því að vita ekki hvað hefur orðið um barnið sitt.
„Menntun barna verður einnig fyrir áhrifum. Undanfarnar vikur hafa 243 skólar lokað eða gert hlé á kennslu og það hefur haft áhrif á meira en 137.000 nemendur.
„UNICEF eykur nú neyðarviðbragð sitt til að ná til allt að 231.000 manns í Jemen með færanlegum heilbrigðis- og næringarteymum, aðgangi að hreinu og öruggu vatni, stuðningi við heilbrigðisstofnanir og þjónustu á sviði barnaverndar.
„En mannúðaraðstoð getur ekki komið í stað verndar. Við getum ekki haldið áfram að ætlast til þess að börn lifi af aðstæður sem þau hefðu aldrei átt að þurfa að upplifa.
„Allir deiluaðilar verða að vernda börn og borgaraleg mannvirki, virða alþjóðlegan mannúðarrétt og tryggja öruggt og óhindrað aðgengi að mannúðaraðstoð.
„Börnin sem ég hef hitt hér tala ekki um stjórnmál eða átök stórveldanna. Þau spyrja um heimili sín, skólann og fólkið sem þau urðu að skilja eftir. Þau spyrja hvar þau eigi að sofa í nótt.
„Þetta ættu ekki að vera spurningarnar sem einkenna bernskuna.
„Börn í Jemen hafa þegar misst allt of mikið vegna átaka. Þau eiga ekki að þurfa að missa meira.“
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"arZCWhEAACkAvumz"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}