{"componentChunkName":"component---src-components-templates-news-page-news-page-js","path":"/barnaeskan-a-gaza-snyst-um-barattuna-fyrir-lifinu","result":{"data":{"prismicPost":{"url":"/barnaeskan-a-gaza-snyst-um-barattuna-fyrir-lifinu","uid":"barnaeskan-a-gaza-snyst-um-barattuna-fyrir-lifinu","type":"post","prismicId":"atH4cBIAACsAle4R","lang":"is","tags":[],"alternate_languages":[],"data":{"override_default_image":{"url":null},"seo_properties":[{"type":null,"value":null}],"post_type":null,"breadcrumbs":[{"parent_page":{"url":"","document":null}}],"date":"2026-10-16T10:12:00+0000","category":"Almennt","feature_image":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/U1CGoYsCKXV5__eL_UN0932007.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=0%2C156%2C1536%2C728&w=2322&h=1100","thumbnails":{"cardpic":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/U1CGoYsCKXV5__eL_UN0932007.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=12%2C0%2C1462%2C1024&w=668&h=468"},"smaller":{"url":"https://images.prismic.io/uniceficeland/U1CGoYsCKXV5__eL_UN0932007.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=413%2C0%2C640%2C1024&w=334&h=534"}}},"excerpt":{"text":"„Börn á Gaza hafa þjáðst allt of mikið og allt of lengi“ – Ræða Ricardo Pires, aðstoðartalsmanns UNICEF, á blaðamannafundi í dag"},"page_title":{"text":"Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu"},"image_text":{"text":"Ung stúlka bíður í langri röð eftir því að fá hreint vatn í brúsa. Mynd: UNICEF/UN0932007/Nateel "},"embedded_media":{"embed_url":null},"body":[{"__typename":"PrismicPostBodyRichtext","id":"411b780c-022a-565a-8528-245e96c54e29","slice_type":"richtext","primary":{"heading":{"text":""},"text":{"html":"
Ræða Ricardo Pires, aðstoðartalsmanns UNICEF, á blaðamannafundi í Palais des Nations í Genf í dag:
„Á síðustu tveimur vikum hefur verið tilkynnt um að fimm drengir og tvær stúlkur hafi verið drepin og að minnsta kosti 33 börn særst alvarlega í loftárásum, drónaárásum og skotárásum víðs vegar um Gaza, þrátt fyrir vopnahlé. Tveir drengir til viðbótar létust af völdum áverka sem þeir höfðu hlotið áður.
Rúmu ári eftir að vopnahlé var tilkynnt hefur verið greint frá því að yfir 340 börn hafi verið drepin og hundruð til viðbótar særst.
Þetta eru skelfilegar tölur, ekki síst fyrir fjölskyldur sem syrgja börnin sín, og þær samræmast ekki þeirri mynd sem flestir hafa af því hvað vopnahlé á að fela í sér.
Um 800.000 börn eru enn á vergangi og flest þeirra búa í tjöldum eða hættulegum byggingum sem hafa orðið fyrir sprengjuárásum.
Talið er að um 60.000 börn á Gaza hafi misst annað foreldri sitt eða bæði í stríðinu eða eftir að vopnahlé tók gildi.
Nær öll börn þurfa á einhvers konar geðheilbrigðisstuðningi að halda til að ná bata.
Nú þegar veturinn nálgast á ný standa þessi börn frammi fyrir fjórða árinu í röð þar sem þau berjast við að lifa af við skelfilegar aðstæður. Þau búa í skemmdum tjöldum, án fullnægjandi hreinlætisaðstöðu og í þröngum vistarverum sem fjölskyldur reyna að útbúa sér þar sem þær finna skjól.
Vopnahléið hefur gert það kleift að auka innflutning mannúðaraðstoðar og annarra nauðsynjavara til Gaza og fæðuöryggi hefur batnað. En afleiðingar stríðsins lita alla þætti daglegs lífs barna á Gaza: hvar þau sofa, hvað þau borða, hvort þau geti stundað nám, hvort þau upplifi nægilegt öryggi til að leika sér og hvort fólkið sem þau elska sé enn við hlið þeirra.
Þannig er staðan til dæmis hjá hinni 16 ára Norhan, sem samstarfsfólk mitt hitti nýlega. Móðir hennar var skotin þegar hún var komin átta mánuði á leið. Hún fæddi barnið sitt en lést daginn eftir.
Faðir Norhan býr við fötlun og því hefur hún nú tekið að sér að annast eins árs gamla systur sína, Narjis, og ber alfarið ábyrgð á henni. Dagar hennar fara í að taka til á heimilinu, elda og leika við Narjis. Þrjú önnur systkini hennar sækja námsmiðstöð sem nýtur stuðnings UNICEF og Norhan hjálpar þeim með námið eftir kennslu. Eins og hún segir sjálf: „Þau eiga kannski framtíð fyrir sér.“
Frá því að vopnahlé tók gildi hafa yfir 560.000 börn snúið aftur til náms, meðal annars í meira en 200 námsmiðstöðvum sem njóta stuðnings UNICEF. Á þessu ári höfum við veitt yfir 380.000 manns stafræna fjárhagsaðstoð sem hefur reynst þeim lífsnauðsynleg. Við höldum jafnframt áfram að tryggja 1,2 milljónum manna aðgang að hreinu vatni, fjarlægja fastan úrgang og afhenda sjúkragögn og lækningavörur.
Þetta starf er afar mikilvægt og bjargar mannslífum. En það dugar hvergi nærri til að endurreisa þjónustu þannig að hún virki sem skyldi.
Þetta á meðal annars við um fráveitukerfi og hreinlætisinnviði. Allar sex skólphreinsistöðvar Gaza eru enn óstarfhæfar.
Stærstum hluta óhreinsaðs skólps er dælt beint í sjóinn og mengunin hefur áhrif á strandlengjuna um langan veg.
Víða eru stórar skólptjarnir, meðal annars í regnvatnslóninu við Sheikh Radwan, sem er hálffullt. Þegar vetrarrigningarnar nálgast óðum höfum við sífellt minni tíma til að dæla vatninu úr lóninu.
Fyrir ári vöruðum við við því að mengað vatn gæti flætt yfir bakka sína og inn á íbúðarsvæði neðar í landinu, með hugsanlega lífshættulegum afleiðingum fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Börn hafa áður drukknað í vatni sem mengað er af skólpi.
Hægt væri að tæma lónið á tveimur vikum, en Ísrael hefur enn ekki heimilað að nauðsynlegur búnaður verði fluttur inn á Gaza.
Þörfin er gríðarleg og fjármögnun er langt undir því sem þarf. Þess vegna er sveigjanleg, fyrirsjáanleg og viðvarandi fjármögnun svo mikilvæg ef við eigum að ná til barna og fjölskyldna sem þurfa á aðstoð að halda.
Fjölskyldur sem búa í skemmdum húsaskjólum og yfirfullum búðum fólks á vergangi hafa sífellt meiri áhyggjur af því hvort börn þeirra lifi af harðan kulda og rigningu vetrarins.
En þrátt fyrir allt halda börn í vonina, eins og þau gera alltaf. Draumur Norhan er að verða lyfjafræðingur. Hún hefur ekki gefið þann draum upp á bátinn, þótt hún búist ekki við því að hann rætist.
Framtíðin sem börn á Gaza þrá er einfaldlega sú að fá að njóta barnæskunnar, eins og þau eiga rétt á. Til að það geti orðið að veruleika þurfa börnin raunverulegt vopnahlé og að friðaráætluninni verði að fullu hrint í framkvæmd nú þegar.
Börn þurfa öryggi og vernd, hvort sem þau eru á Gaza, á Vesturbakkanum eða í Ísrael.
Þau þurfa að ná bata, byrja að vinna úr áföllum sínum og geta snúið aftur til eðlilegs lífs.
Til þess þurfa aðildarríki Sameinuðu þjóðanna að setja börn í forgang.
Ísraelsk stjórnvöld þurfa að heimila innflutning á efni, búnaði og tæknivörum sem nauðsynlegar eru til að endurbyggja innviði og koma grunnþjónustu aftur í gang. Án nægilegs framboðs varahluta, rafala og vélarolíu verður ekki einu sinni hægt að halda þeirri þjónustu gangandi sem enn er starfandi.
Aðilar að átökunum þurfa að virða skilmála vopnahlésins, ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2803 og skyldur sínar samkvæmt alþjóðlegum mannúðarrétti.
Umfram allt þurfum við að hlusta á raddir barna á Gaza.
Fyrir börn felst bati í því að komast aftur í skólann, verja tíma með vinum og fjölskyldu, hafa mannsæmandi húsaskjól sem varðveitir reisn þeirra, geta leikið sér á öruggum stað, fengið heilbrigðisþjónustu þegar þau þurfa á henni að halda og endurheimta tilfinningu fyrir stöðugleika og eðlilegri barnæsku.
Svona verður framtíð palestínskra barna að líta út.
Börn á Gaza hafa þjáðst allt of mikið og allt of lengi.“
"}}}]},"loginpage":null}},"pageContext":{"language":"is","prismicId":"atH4cBIAACsAle4R"}},"staticQueryHashes":["1216418271","2681192219","2999785817","675757224"]}